ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Fréttir
Prenta vefsíðu
24. júlí 2012 15:35

Samið um kaup á Landsbankahúsinu við Akratorg

Á dögunum voru undirritaðir samningar á milli Landsbankans og Akraneskaupstaðar um kaup bæjarins á sk. Landsbankahúsi við Akratorg.

Samningurinn á sér nokkurn aðdraganda en á síðasta ári lýstu bæjaryfirvöld á Akranesi yfir áhuga á að kaupa húsið og gerðu Landsbankanum kauptilboð í framhaldi af því. Hugmyndir um kaup á húsinu undirstrikuðu þann vilja kaupstaðarins að hefja endurreisn miðbæjarins og Akratorgs en húsið sem hýsti starfsemi Landsbankans á Akranesi um áratuga skeið er afar áberandi í götumyndinni við Akratorg og því má segja að ein forsenda þess að hefja uppbyggingu í gamla miðbænum sé í því fólgin að eignast húsið.

Skemmst er frá því að segja að Landsbankinn féllst á kauptilboð Akraneskaupstaðar, en kaupverðið er aðeins brot af matsverði hússins auk þess sem lóðin við Suðurgötu, bakvið húsið, fylgir með í kaupunum. Unnið er að útfærslu hugmynda um þá starfsemi sem færð verður í húsið fyrst um sinn en ýmsar hugmyndir hafa einnig verið ræddar um framtíðar nýtingu hússins, m.a. þær að þar verði ráðhús bæjarins þegar fram líða stundir.

Við sama tækifæri voru undirritaðir samningar um bankaviðskipti Akraneskaupstaðar við Landsbankann og þá mun bankinn annast innheimtu fasteignagjalda fyrir hönd kaupstaðarins. Á meðfylgjandi mynd eru þeir Hannes Marinó Ellertsson, útibússtjóri Landsbankans á Akranesi, Árni Múli Jónasson, bæjarstjóri og Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans við undirritun samninganna.

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008