ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Fréttir
Prenta vefsíðu
21. apríl 2004 11:42

Fjöruganga í tilefni af degi umhverfisins

Tómstunda- og forvarnarsvið fer nú af stað í annað sinn með verkefnið "Göngum til heilbrigðis" með gönguferð í tilefni af degi umhverfisins laugardaginn 24. apríl kl. 15.00.  Lagt verður af stað frá tjaldstæðinu við Kalmansvík og verður ferðinni heitið sem hér segir:

Tjaldstæði Akraness - Kalmansvík - Elínarhöfði - Höfðavík - Miðvogur og til baka.  Leiðsögumaður verður Hannes Þorsteinsson, líffræðingur og mun hann fræða göngufólk um gróðurtegundir, fjörudýrin og fuglana sem á vegi verða.  Göngufólki verður svo boðið í Jaðarsbakkalaug að lokinni gönguferð.

 

Í sumar verða farnar 10 ferðir og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.   Markmið verkefnisins er að hvetja fólk til að stunda holla hreyfingu, fræðast og njóta náttúrunnar.  Færir leiðsögumenn verða í hverri ferð.

 

Næstu 5 ferðir “Göngum til heilbrigðis”:

-        Fuglaskoðunarferð (varptíminn) – 21. maí

-        Glymsganga – 12. júní

-        Miðnæturganga á Akrafjall í tilefni af Jónsmessunni – 25. júní

-        Saga Akraness – 15. júlí

-        Síldarmannagötur – 24. júlí

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008