ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Fréttir
Prenta vefsíðu
14. september 2005 09:40

Ásta lætur af störfum

Ásta G. Ásgeirsdóttir
Um síðustu mánaðamót lét Ásta G. Ásgeirsdóttir,  bókavörður á Bókasafni Akraness af störfum eftir langt og farsælt starf. Ásta hóf störf við bókasafnið þann 1. október 1958, í tíð Sveinbjarnar Oddssonar þáverandi bókavarðar. Hún hefur því starfað á bókasafninu í samfellt 47 ár og á lengstan starfsferil allra þar.  Á fundi Bæjarráðs Akraness nú nýverið voru Ástu færðar þakkir fyrir störf hennar í þágu bæjarfélagsins og bæjarbúa.

 

 

 

Er Ásta hóf störf, var bókasafnið til húsa að Kirkjubraut 8 í fremur lélegum húsakynnum. Bókasafnið tók til starfa á núverandi stað að Heiðarbraut 40 árið 1972 og þótti það húsnæði mjög glæsilegt í alla staði.

 

Ásta hefur lengst af starfað sem bókavörður, en á árum áður leysti hún af sem forstöðumaður í lengri og skemmri tíma. Hún sótti námskeið við Háskóla Íslands sem boðið var upp á fyrir reynda bókaverði og forstöðumenn minni bókasafna. Þessi námskeið komu sér vel við hin fjölbreyttu störf í bókasafninu.  Starf bókavarðar hefur breyst  mjög mikið á þessum árum. Hér áður fyrr voru öll útlán handskrifuð, en nú er allt unnið í tölvu.

 

Bókasafn Akraness og Akurnesingar allir þakka Ástu fyrir gott og gæfuríkt starf á bókasafninu í öll þessi ár og óska henni velfarnaðar um ókomin ár.

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008