3. júlí 2006 08:00
Heilsa og lífskjör skólanema (HBSC) - Líkamsímynd, líðan nemenda og hreyfing
Nú á vordögum 2006 tóku nemendur í 6., 8. og 10. bekk í grunnskólum Akraness þátt í rannsókninni "Heilsa og lífskjör skólanema" en Háskólinn á Akureyri og Lýðheilsustöð stóðu sameiginlega að framkvæmd hennar á Íslandi. Rannsóknin er íslenskur hluti alþjóðlegrar rannsóknar sem unnið er að tilstuðlan Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) og nefnist Health Behaviour in School-aged Children (HBSC). Meginmarkmið rannsóknarinnar er að auka þekkingu og skilning á heilsu og lífskjörum ungs fólks.
Skoða niðurstöður: Heilsa og lífskjör skólanema (HBSC) - Áhættuhegðun, reykingar, ölvun og önnur vímuefni
Viðfangsefni rannsóknarinnar eru víðtæk en meðal annars er spurt um lífstíl, næringu, matmálstíma, hreyfingu, tómstundir, slys, tannhirðu, líðan, félagsleg tengsl og umhverfi nemenda auk þess sem spurt er um ýmsa áhættuhegðun. Aðstandendur rannsóknarinnar sendu niðurstöður til grunnskóla Akraness og núna á næstu dögum munum við birta helstu niðurstöður úr rannsókninni þar sem niðurstöður frá Akranesi eru bornar saman við niðurstöður yfir landið í heild og Reykjavík. Einnig er hægt að nálgast niðurstöður rannsóknarinnar landshlutaskýrsluna á vef Lýðheilsustöðvar – undir liðnum rannsóknir (lydheilsustod.is).