ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Fréttir
Prenta vefsíðu
9. janúar 2003 17:15

Ljósmyndasafnið á vefinn

Þann 28. desember var stofnað Ljósmyndasafn Akraness við athöfn í Safnaskálanum að Görðum.  Í tilefni þess var opnuð heimasíða Ljósmyndasafnsins en hún hefur að geyma eins og er um 600 myndir. Enn sem komið er eru á vefnum mjög takmarkaðar upplýsingar um myndirnar og einungis óformleg skráning hefur átt sér stað. Úr því verður bætt á næstu mánuðum með dyggri aðstoð allra þeirra sem þekkja til myndanna auk þess sem fjölda mynda verður bætt við.

Í hvert skipti sem forsíða vefsins er kölluð fram birtast tilviljanakennd sýnishorn úr myndagrunninum. Með því að smella á mynd birtist hún stærri á næstu skjámynd. Fyrir neðan myndina er hnappur þar sem gefin er kostur á að senda safninu upplýsingar um myndina. Með því að smella á þann hnapp kemur upp ný valmynd þar sem hægt er að slá inn upplýsingar um sendanda og myndina.  Þegar myndir á forsíðu hafa verið skoðaðar er hægt að smella á forsíðuhnappinn eða F5 til að fá önnur tilviljunarkennd sýnishorn úr myndasafninu.

 

Á forsíðu heimasíðunnar eru gefnir tveir leitarmöguleikar, annars vegar að slá inn leitarorð og hins vegar að velja efnisflokk.

 

Ljósmyndasafnið er hægt að finna á heimasíðu Akraness undir, AFÞREYING og síðan valið SÖFN. Eða smellt hér http://www.akranes.is/ljosmyndasafn

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008