ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Fréttir
Prenta vefsíðu
6. febrúar 2003 14:28

Launakostnaður Akraneskaupstaðar rúmlega einn milljarður á árinu 2002

Heildar launakostnaður Akraneskaupstaðar á árinu 2002 með launatengdum gjöldum var 1,015 milljarðar króna, en á árinu 2001 var sami kostnaður 898 milljónir króna.  Hækkun launakostnaðar á milli ára er því 13%.  Meðaltalshækkun launavísitölu opinberra starfsmanna var um 10% á milli áranna 2001 og 2002. 

Hækkun launakostnaðar hjá Akraneskaupstað umfram vísitölu stafar fyrst og fremst af fjölgun starfsmanna á árinu, fjölgun eftirlaunaþega svo og auknum kostnaði við launatengd gjöld sem hækkaði nokkuð umfram hækkun launavísitölu. 
 
Launakostnaður:              2002                    2001
 
Laun fyrir dagvinnu               598 m.kr              508 m.kr.
Laun fyrir yfirvinnu                141 m. kr             150 m.kr
Eftirlaun                                   95 m.kr               82 m.kr
Launatengd gjöld                   143 m.kr             121 m.kr
Önnur laun                               38 m.kr               37 m.kr.

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008