ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Fréttir
Prenta vefsíðu
29. janúar 2009 10:21

Nytjamarkaðurinn Búkolla opnar

Í dag, fimmtudaginn 29. janúar kl. 12:00 opnar nytjamarkaðurinn Búkolla að Vesturgötu 62, þar sem tréiðnabraut Fjölbrautaskóla Vesturlands var áður til húsa. Búkolla verður fyrst um sinn opin fimmtudaga og föstudaga frá kl. 12:00 til 16:00 og laugardaga frá kl. 10:00 til 14:00 en opnunartími ræðst nokkuð af því hversu vel gengur að fá muni til sölu á markaðnum. Fólk er því hvatt til að nýta sér nytjagáma til að losna við dót úr geymslum og bílskúrum.

Allur ágóði af starfsemi Búkollu rennur í rekstur staðarins til að skapa störf fyrir öryrkja á Akranesi en að verkefninu standa Endurhæfingarhúsið HVER, Fjöliðjan, Akranesstofa og Gámaþjónusta Vesturlands.

Tilgangur verkefnisins er að sjá til þess að nýtanlegir og seljanlegir hlutir gangi í endurnýjun lífdaga í þágu góðs málstaðar, ekki ósvipað og Góði hirðirinn í Reykjavík, sem rekinn hefur verið með góðum árangri undanfarin ár. Um leið skapast spennandi og um leið krefjandi verkefni fyrir fólk sem þarf á stuðningi og hvatningu að halda og tækifæri til að fóta sig að nýju sem þátttakendur í daglegu lífi. Þá er Búkolla verkefni sem setur svip á bæjarlífið, vekur athygli á bænum og skapar tilefni fyrir gesti að heimsækja bæinn og skoða í kirnu Búkollu um leið.

Fólk er hvatt til að kíkja í heimsókn til Búkollu og skoða margvíslegan varning sem þar er í boði; húsgögn, bækur, skrautmuni, gjafavöru, fatnað og ýmsan húsbúnað.

 

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008