5. febrúar 2009 13:57
Dagur leikskólans er á morgun, föstudaginn 6. febrúar!
Dagur leikskólans verður haldinn hátíðlegur á morgun, föstudaginn 6. febrúar og verður margt skemmtilegt gert á leikskólum bæjarins í tilefni dagsins. Dagur leikskólans var í fyrsta skipti haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins þann 6. febrúar á síðasta ári, en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Félag leikskólakennara, í samstarfi við menntamálaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga og samtökin Heimili og skóla hrundu verkefninu af stað. Haldið verður upp á daginn árlega og með því stuðlað að jákvæðri umræðu um leikskólastarf og kynningu þess út á við.
Akraneskaupstaður mun í tilefni dagsins gefa út upplýsingarit um leikskóla Akraneskaupstaðar og er hægt að nálgast hann á rafrænu formi með því að smella hér. Bæklingnum verður síðan dreift til foreldra barna á leikskólum bæjarins auk þess sem hann mun liggja frammi hjá leikskólunum og á bæjarskrifstofu Akraneskaupstaðar.
Menntamálaráðuneytið gaf út bæklinginn „Dagur leikskólans" í samvinnu við samstarfsaðilana og er hann aðgengilegur á rafrænu formi á netslóðinni http://bella.mrn.stjr.is/utgafur/dagur_leikskolans.pdf
Leikskólarnir á Akranesi munu halda upp á daginn með ýmsum hætti.
Í leikskólanum Akraseli verður haldið upp á daginn með því að fara í skrúðgöngu klukkan 10:00 og arka um nánasta umhverfi leikskólans og að því loknu verður söngstund við útisviðið í garði leikskólans. Það eru allir velkomnir í söngstundina í garðinum.
Í Garðaseli verður vinastund á Skála þar sem allar deildir koma saman og eiga skemmtilega söngstund. Og í tilefni dagsins verður boðið upp á vöfflur í kaffinu.
Í Teigaseli verður opið hús fyrir ömmur og afa barnanna á milli kl. 09:00 og 11:00. Dagur leikskólans á Teigaseli verður einnig tengdur degi stærðfræðinnar en þemað í ár er þríhyrningar.
Í Vallarseli gera nemendur og kennarar sér glaðan dag með ýmsum hætti m.a. verða bakaðar vöfflur með kaffinu.
Hægt er að fá nánari upplýsingar um Dag leikskólans á vefsíðum leikskólanna:
www.akrasel.is
www.gardasel.is
www.teigasel.is
www.vallarsel.is