ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Fréttir
Prenta vefsíðu
14. júlí 2003 12:00

Fróðársmiðjan

Starfsmenn Fróðársmiðjunnar; f.v. Inga Björg Sigurðardóttir, Guðný Friðþjófsdóttir, Inga Dóra Steinþórsdóttir, Finnur Þórðarson og verðlaunahafinn Inga Lilja Guðjónsdóttir.
Þegar Dýrfinna Torfadóttir og Listsmiðjan Hugur og hönd fluttu starfsemi sína í Fróðá á Safnasvæðinu Görðum var jafnframt auglýst eftir tillögum að nafni á starfsemina. Nokkur hundruð hugmyndir bárust og skal hér þakkað sérstaklega fyrir góðan áhuga bæjarbúa.

 Eftir að hafa farið yfir þær hugmyndir sem bárust voru rekstraraðilar sammála um að framvegis muni starfsemin í  Fróðá heita: Fróðársmiðjan. Þá hugmynd átti Inga Lilja Guðjónsdóttir og fékk hún í dag afhent verðlaun sem í boði voru en þau voru að sjálfstögðu framleidd af listafólkinu í Fróðársmiðjunni. 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008