ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Fréttir
Prenta vefsíðu
5. febrúar 2010 09:33

Dagur leikskólans 6. febrúar 2010

Dagur leikskólans, 6. febrúar sem að þessu sinni ber upp á laugardag, verður haldinn hátíðlegur í leikskólum í dag 5. febrúar. Þann 6. febrúar árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín og halda því upp á 60 ára afmæli sitt í ár.  Félag leikskólakennara í samstarfi við menntamálaráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga og Heimili og skóla fóru af stað með verkefnið „Dagur leikskólans“ árið 2008 og hafa haldið upp á hann síðan en með því er stuðlað að jákvæðri umræðu um leikskólastarf og kynningu þess út á við.

Lesa má meira um Dag leikskólans með því að smella hér (pdf).

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008