ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu

Norðurálsmótið

Norðurálsmótið á Akranesi er knattspyrnumót fyrir stráka í 7. flokki.  Allir þjálfarar, fararstjórar, foreldrar, systkini og aðrir ættingjar eru velkomnir á Skagann með strákunum. Árlega fer fram mikil undirbúningsvinna svo að mótið gangi vel fyrir sig og  til að hægt sé að taka sem best á móti öllum. Ríflega 800 sjálfboðaliðar, flestir foreldrar barna sem stunda íþróttir hjá ÍA, koma að þeirri vinnu og þeim störfum sem þarf að sinna meðan á móti stendur en Knattspyrnufélag ÍA sér um skipulag og framkvæmd mótsins. 

Mótið, sem í fyrstu kallaðist Skagamótið, er haldið um miðjan júní ár hvert. Yfir þúsund keppendur eru árlega á mótinu og síðustu árin hafa yfir 6.000 manns verið gestkomandi á Akranesi yfir mótsdagana og því liggur nærri að íbúafjöldi bæjarins tvöfaldist meðan á móti stendur en íbúar á Akranesi eru nú ríflega 6.600.

Sérstök tjaldstæði eru útbúin fyrir mótsgesti í nágrenni við keppnisvellina á Jaðarsbökkum og þar gista flestir aðstandendur en keppendur gista í skólum bæjarins.

Smelltu hér til að komast inn á vef Norðurálsmótsins. 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008