Ef til vill er það ekki á allra vitorði að á Akranesi er að finna mörg merkileg söfn og að margra mati eru sum þeirra í flokki allra merkilegustu safna landsins. Á Akranesi er t.d. að margra mati varðveitt eitt helsta leyndarmál íslenskrar ferðaþjónustu, en það er hið margrómaða Safnasvæðið að Görðum. Söfnin sækja gestir og gangandi, börn jafnt sem fullorðnir svo þúsundum skiptir ár hvert og eykst fjöldi gesta stöðugt ár frá ári, um leið og ný söfn og nýjar sýningar bætast í safnaflóruna.