Öldrunardeild
Öldrunardeild er hluti af fjölskyldusviði bæjarins og annast öldrunarfulltrúi í samvinnu við sviðsstjóra fjölskyldusviðs daglegan rekstur félagslegrar heimaþjónustu, umsjón með heimsendingu matar og félags- og tómstundastarfi aldraðra auk samskipta við Félag eldri borgara á Akranesi og nágrenni (FEBAN). Öldrunarfulltrúi sinnir almennt uppbyggingu og þróun deildarinnar, fræðslustarfi og kynningu á þjónustu við aldraða. Öldrunarfulltrúi hefur umsjón með dagmæðrum og niðurgreiðslum vegna daggæslu barna í heimahúsum.
Helstu verkefni:
Félagsleg heimaþjónusta
Þjónusta við öryrkja og aldraða íbúa á Akranesi miðar að því að þeir geti búið eins lengi og unnt er við eðlilegt heimilislíf. Heimaþjónusta er veitt eftir mati sem unnið er af öldrunarfulltrúa í samstarfi við hinn aldraða, hinn fatlaða, sjúkrahús, heilsugæslu eða aðstandendur viðkomandi. Smellið hér til að sækja umsóknareyðublað um félagslega heimaþjónustu.
Heimsending matar
Öryrkjar og aldraðir eiga þess kost að fá heimsendan mat, eina máltíð á dag, og er það í samvinnu við Dvalarheimilið Höfða. Þjónustuþegar greiða fyrir máltíðina en ekki fyrir heimsendinguna. Smellið hér til að sækja umsóknareyðublað fyrir heimsendingu matar.
Félags- og tómstundastarf aldraðra
Félags- og tómstundastarf er starfrækt 9 mánuði ársins nokkrum sinnum í viku í félagsaðstöðu FEBAN og Akraneskaupstaðar að Kirkjubraut 40.
Samstarf við heilsugæslu
Náið samstarf er við heilsugæslu varðandi þá sem njóta þjónustu heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu.
Nefndir og ráð
Félagsmálaráð
Félagsmálaráð er skipað fimm fulltrúum tilnefndum af bæjarstjórn skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Sviðsstjóri og yfirfélagsráðgjafi sitja fundi nefndarinnar og öldrunarfulltrúi þegar málefni öldrunardeildar eru til umfjöllunar. Ráðið fjallar um framfærslumál, um barnavernd sbr. barnaverndarlög nr. 58/1992, heimilishjálp, þjónustu við aldraða og almenna félagslega þjónustu, sbr. lög um félagsþjónustu sveitarfélaga. Félagsmálaráð fer með barnaverndarmál fyrir hreppana sunnan Skarðsheiðar skv. samningi þar um. Félagsmálaráð fjallar um jafnréttismál sbr. lög nr. 96/2000. Félagsmálaráð annast húsnæðismál skv. lögum nr. 44/1998 sem húsnæðisnefndum er falið skv. þeim lögum.
Félagsmálaráð er skipað eftirtöldum aðilum:
Aðalmenn:
Sæmundur Víglundsson
Margrét Þóra Jónsdóttir
Anna Lára Steindal
Sigurður Arnar Sigurðsson
Vilhjálmur Andrésson
Tryggvi Bjarnason
Varamenn:
Ágústa Friðriksdóttir
Magnús Þór Hafsteinsson
Ella María Gunnarsdóttir
Þórunn Konbeins Matthíasdóttir
Hallveig Skúladóttir
Þjónustuhópur aldraðra
Þjónustuhópur aldraðra er samstarfshópur starfsliðs heilsugæslustöðvar og starfsliðs félagslegrar þjónustu í bæjarfélaginu. Í hópnum starfa heilsugæslulæknir, hjúkrunarfræðingur af heilsugæslu, sviðsstjóri fjölskyldusviðs og framkvæmadstjóri dvalarheimisins Höfða auk fulltrúa FEBAN þegar fjallað er um öldrunarþjónustu í víðustum skilningi. Hrepparnir sunnan Skarðsheiðar skipa einnig fulltrúa í þjónustuhópinn, en þjónustusvæðið er heilsugæsluumdæmið. Þjónustuhópnum er ætlað m.a. að fylgjast með heilsufari og félagslegri velferð aldraðra á starfssvæðinu. Meta vistunarþörf aldraðra og tryggja eins og hægt er að aldraðir fái þá þjónustu sem þeir þarfnast.
Þjónustuhópurinn er skipaður eftirtöldum aðilum:
Dvalarheimilið Höfði –
íbúðir og þjónustumiðstöð fyrir aldraða og öryrkja á Akranesi.
Dvalarheimilið Höfði er skráð sjálfseignarstofnun og er í 90% eigu Akraneskaupstaðar og 10% sveitarfélaganna fjögurra sunnan Skarðsheiðar. Upphaflega var heimilið rekið sem hefðbundið dvalarheimili, en á undanförnum 10 árum hefur hluta þess verið breytt í hjúkrunarheimili, í samræmi við kröfur tímans. Íbúar eru alls 78, þar af helmingur skráður á hjúkrunardeild. Nettó húsrými á hvern íbúa er með því mesta á landinu, milli 20 og 25 fermetrar, og eru flestir í eigin íbúð með baði og öðrum nauðsynlegum útbúnaði. Í 7 stórum íbúðum á hjúkrunardeild eru reyndar tveir íbúar um hverja íbúð, en reynt er að koma því svo fyrir að hver og einn geti búið að sínu eftir því sem hægt er. Starfsmenn á Höfða eru nú 88 í 63 stöðugildum. 37 stg. tilheyra hjúkrunardeild, en 26 stg. sinna almennu deildunum. Fagfólki í hjúkrun hefur fjölgað mjög á Höfða á síðustu árum, og er ráðning þeirra að kröfu heilbrigðisráðuneytis og landlæknis. M.a. eru starfandi sex hjúkrunarfræðingar í 4.65 stöðugildum, 17 sjúkraliðar í 12 stg. og einn sjúkraþjálfari í o.65 stg.
Dægradvöl
Dagdeild fyrir aldraða og öryrkja hefur nú verið starfrækt á Höfða í 20 ár. Á milli 30 og 35 einstaklingar nýta sér þá þjónustu, en heimild er fyrir 20 heilsdags pláss. Í þjónustumiðstöðinni er boðið upp á fjölbreytta þjónustu, auk þess sem matur er sendur út í bæ frá mötuneyti heimilisins. Þá þjónustu nýta sér í hverjum mánuði milli 15 og 20 einstaklingar og eru matarskammtar um 5000 á ári. Ferðaþjónusta fyrir fatlaða á vegum Akraneskaupstaðar er einnig rekin frá Höfða, auk ferðaþjónustunnar fyrir þátttakendur í dagvistuninni.
Þjónustuíbúðir
27 raðhús –sjálfseignaríbúðir fyrir aldraða og öryrkja- voru reist á lóð heimilisins á árunum 1984 til 1993, en búseta í þjónustuíbúðum er góður kostur fyrir aldraða, sem halda vilja eigið heimili sem lengst. Nú hefur verið veitt heimild til að byggja 4 íbúðir til viðbótar í hverfinu, og verður þá fullbyggt þar samkvæmt eldra skipulagi.
Stjórn Dvalarheimilisins Höfða
Skv. Skipulagsskrá fyrir Dvalarheimilið Höfða, sem samþykkt var af bæjarstjórn Akraness þann 24. september 1991, skipa stjórn heimilisins 5 menn, skulu þeir tilnefndir af eigendum til 4 ára í senn að loknum sveitarstjórnarkosningum. Bæjarstjórn Akraness tilnefnir 4 stjórnarmenn og hrepparnir sameiginlega 1 mann. Varamenn skulu tilnefndir á sama hátt.
Stjórnin er skipuð eftirtöldum aðilum:
Aðalmenn:
Benedikt Jónmundsson, formaður
Karen Jónsdóttir
Rún Halldórsdóttir
Anton Ottesen, fulltrúi Hvalfjarðarsveitar.
Varamenn:
Guðrún M. Jónsdóttir
Hallveig Skúladóttir
Ragnheiður Ólafsdóttir
Dóra Líndal Hjartardóttir, varafulltrúi Hvalfjarðarsveitar