Útivistarreglur barna eru samkvæmt barnaverndarlögum og mega börn ekki vera á almannafæri nema í fylgd með fullorðnum sem hér segir:
Frá 1. september til 1. maí mega 12 ára börn og yngri ekki vera úti eftir kl. 20 og 13 - 16 ára börn mega ekki vera úti eftir kl. 22.
Bregða má út af reglunum þegar börn 13-16 ára eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. aldur miðast við fæðingarár. Sjá nánar
Á fundi bæjarstjórnar Akraness sem haldinn var þann 10. nóvember 2009 var samþykkt aðalskipulagsbreyting vegna lóðarinnar númer 5 við Vallholt.
Breytingin felst m.a. í að lóðinni númer 5 við Vallholt sem er 0,2 ha athafnasvæði er breytt í íbúðasvæði með nýtingarhlutfalli að hámarki 1, þar sem byggja má fjölbýlishús á tveimur hæðum.
Breytingartillagan var auglýst skv. 1. mgr. 21. gr. laga nr. 73/1997 frá 28. ágúst 2009 til 25. september 2009, frestur til að skila inn athugasemdum var til 9. október 2009. Athugasemdir bárust og hafa þær fengið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög mæla fyrir um og var breytingartillagan samþykkt óbreytt.
Aðalskipulagsbreytingin tekur þegar gildi.
Akranesi, 11. ágúst 2010.
Þorvaldur Vestmann
framkvæmdastjóri
Skipulags- og umhverfisstofu
Farmiðasala vegna strætó verður frá 1. september 2009 í Íþróttamiðstöðinni á Jaðarsbökkum. Hægt er að nálgast farmiða og kort í afgreiðslu Íþróttamiðstöðvarinnar á venjulegum opnunartíma. Jafnframt verður hætt sölu farmiða á bæjarskrifstofunni og í Skrúðgarðinum.
Vakin er athygli farþega á að nægt geymslusvæði er vestan íþróttahúss fyrir bifreiðar strætófarþega.
Akraneskaupstaður,
Framkvæmdastofa.