ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Stjórnsýsla :: Fjármál og gjöld
Prenta vefsíðu

Upplýsingaveita sveitarfélaga

Um nokkurra ára skeið hefur ýmsum upplýsingum um sveitarfélögin verið safnað kerfisbundið inn í gagnagrunn sem ber heitið Upplýsingaveita sveitarfélaga. Verkefnið hefur verið unnið í samvinnu Sambands íslenskra sveitarfélaga, Hagstofu Íslands og Félagsmálaráðuneytisins (Samgönguráðuneytisins frá síðustu áramótum).  KPMG hefur verið faglegur ráðgjafi á ýmsum sviðum í tengslum við þetta verkefni. Þær upplýsingar sem er að finna í gagnagrunninum koma fyrst og fremst úr ársreikningum sveitarfélaga eða frá Hagstofu Íslands sem hefur safnað þeim frá sveitarfélögunum. Markmið verkefnisins er að hafa sem mestar upplýsingar sem varða sveitarfélögin tiltækar á einum stað og aðgengilegar fyrir alla þá sem áhuga hafa.

Fyrstu árin hefur aðgengi að gagnagrunninum verið bundið við þær stofnanir sem að verkefninu hafa staðið gegnum svokallað Cognos kerfi. Á síðasta ári var samið við Hagstofu Íslands um notkun á kerfi því sem hagstofan notar til birta þær upplýsingar sem stofnunin safnar saman á vefsíðu sinni. Það gerir mögulegt að opna aðgengi allra að gagnagrunninum gegnum netið á ódýran og einfaldan hátt.

Í gagnagrunninum er nú að finna upplýsingar um eftirfarandi efnisatriði:

  • Ársreikninga sveitarfélaga, sundurliðaðir á málaflokka
  • Útsvar og fasteignaskatt
  • Grunnskóla
  • Leikskóla
  • Greiðslur úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga
  • Íbúafjölda sveitarfélaga
  • Flatarmál sveitarfélaga

Upplýsingum verður bætt í gagnagrunninn jafnóðum og mögulegt er þannig að í honum verði á hverjum tíma að finna víðtækar upplýsingar um rekstur sveitarfélaga og margháttuð önnur atriði sem tengjast sveitarstjórnarstiginu á Íslandi.

Bein slóð á upplýsingaveituna er http://upplysingaveita.samband.is/ 

 

Upplýsingar þessar eru fengnar af vef Sambands íslenskra sveitarfélaga www.samband.is

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008