ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Stjórnsýsla :: Fjölskylduráð
Prenta vefsíðu

Fjölskylduráð

Úr samþykkt um stjórn Akraneskaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar:

64. gr. um fjölskylduráð:

,,Bæjarstjórn skal á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa fulltrúa í fjölskylduráð til eins árs og jafn marga til vara. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í fjölskylduráð, en varamenn þurfa ekki að vera bæjarfulltrúar. Kosningar í fjölskylduráð skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess."

í 68. gr. sömu samþykktar segir:

,,Fjölskylduráð fer með umsjón og eftirlit með málum sem heyra undir framkvæmda eftirfarandi laga og reglugerða byggðra á þeim, eins og þau eru á hverjum tíma og að því marki sem lögin setja skyldur á herðar sveitarfélaga:

  • félagsmál sbr. lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991
  • barnaverndarmál sbr. barnaverndarlög nr. 80/2002 og barnalög nr. 76/2003
  • húsnæðismál sbr. lög nr. 44/1998
  • málefni fatlaðra sbr. lög nr. 59/1992
  • málefni aldraðra sbr. lög nr. 125/1999
  • heilbrigðismál sbr. lög um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007
  • forvarnir sbr. lög um lýðheilsustöð nr. 18/2003
  • æskulýðs-, tómstunda- og íþróttamál sbr. lög nr. 64/1998 og lög nr. 70/2007
  • grunnskóla sbr. lög nr. 91/2008
  • leikskóla sbr. lög nr. 90/2008 og reglugerð um starfsemi leikskóla nr. 225/1995
  • tónlistarskóla sbr. lög um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985
  • daggæslu barna sbr. reglugerð nr. 198/1992 um eftirlit og leyfisveitingar vegna daggæslu barna í heimahúsum
  • aðrar lagasetningar Alþingis sem á hverjum tíma tengjast verkefnum ráðsins

Fjölskylduráði er heimil fullnaðarafgreiðsla mála sbr. 49 gr. samþykktar um stjórn Akraneskaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar.

Fjölskylduráð úrskurðar um  heimild til endurupptöku mála skv. 52. gr. samþykktar um stjórn Akraneskaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn setur fjölskylduráði erindisbréf.

Fjölskylduráð hefur heimildir til fjárráðstöfunar samkvæmt fjárhagsáætlun.

 

Eftirtaldar nefndir og stjórnir sem kjörnar eru af bæjarstjórn heyra undir fjölskylduráð:

  • Barnaverndarnefnd
  • Fulltrúaráð Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi
  • Skólanefnd Tónlistarskóla

 

Sjá samþykkt um stjórn Akraneskaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008