1. kafli Almenn atriði 1. grein Inntak fjárhagsaðstoðar
Skylt er að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar, sbr. lV. og V1. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, með síðari breytingum, sbr. og lll. kafla þessara reglna. Gefa skal sérstakan gaum að fjárhagslegum og félagslegum aðstæðum barnafjölskyldna og meta sérstaklega þarfir barna vegna þátttöku þeirra í þroskavænlegu félagsstarfi, í samræmi við 30. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, með síðari breytingum, sbr. og 15. og 16. gr. þessara reglna. Fjárhagsaðstoð skal veitt í eðlilegum tengslum við önnur úrræði félagsþjónustu, svo sem ráðgjöf og leiðbeiningar, í samræmi við V. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. Jafnan skal kanna til þrautar rétt umsækjanda til annarra greiðslna, þar með talið frá almannatryggingum, atvinnuleysistryggingum, lífeyrissjóðum og sjúkrasjóðum stéttarfélaga, svo og skal kanna rétt til aðstoðar samkvæmt öðrum lögum, þ.m.t. lögum um námsstyrki. 2. grein Framfærsluskylda Hverjum manni er skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Fólk sem er í skráðri sambúð í Þjóðskrá á sama rétt til fjárhagsaðstoðar og hjón. Sambúðin skal hafa verið skráð í Þjóðskrá í a.m.k. eitt ár áður en umsókn er lögð fram, sbr. 19. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. 3. grein Lækkun grunnfjárhæðar Hafi umsækjandi hafnað atvinnu eða sagt starfi sínu lausu án viðhlítandi skýringa eða hafnað starfsleitaráætlun, er heimilt að greiða honum hálfa grunnupphæð til framfærslu er tilgreind er í lll. kafla reglna þessara þann mánuð sem umsækjandi hafnar vinnu svo og mánuðinn þar á eftir. Sama á við um atvinnulausan umsækjanda sem ekki sýnir fram á staðfesta skráningu sína frá Vinnumálastofnun. Einnig skerðist réttur umsækjanda með sama hætti sem hætt hefur þátttöku í átaksverkefni, endurhæfingu og einstaklingsmiðaðri áætlun hjá ráðgjafa, nema veigamiklar ástæður sem fram koma við mat á aðstæðum umsækjanda mæli gegn því.
4. grein Réttur fylgir lögheimili Einstaklingar með lögheimili á Akranesi geta sótt um fjárhagsaðstoð skv. reglum þessum. Umsókn um fjárhagsaðstoð skal leggja fram í lögheimilissveitarfélagi. Lögheimili manns er sá staður þar sem hann hefur fasta búsetu. Maður telst hafa fasta búsetu á þeim stað þar sem hann hefur bækistöð sína, dvelst að jafnaði í tómstundum sínum, hefur heimilismuni sína og svefnstaður hans er þegar hann er ekki fjarverandi um stundarsakir vegna orlofs, vinnuferða, veikinda eða annarra hliðstæðra atvika, sbr. 2. mgr. 1. gr. laga um lögheimili nr. 21/1990. Þurfi fólk á skyndilegri aðstoð að halda í dvalarsveitarfélagi er skylt að veita tímabundna aðstoð. Skal um það haft samráð við lögheimilissveitarfélag og aðstoð metin og veitt í samræmi við reglur þess. Lögheimilissveitarfélag endurgreiðir dvalarsveitarfélagi kostnaðinn, sbr. 14. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. 5. grein Form fjárhagsaðstoðar Fjárhagsaðstoð skal að jafnaði veitt sem styrkur. Fjárhagsaðstoð er einungis veitt sem lán óski umsækjandi þess eða könnun á aðstæðum leiðir í ljós að eðlilegt sé að gera kröfur um endurgreiðslur með tilliti til eigna og framtíðartekna. Skilyrði fyrir fjárhagsaðstoð í formi láns er að umsækjandi notfæri sér greiðsluþjónustu banka eða sparisjóða, enda liggi fyrir mat á endurgreiðslugetu umsækjanda. Á meðan umsókn einstaklings er í vinnslu hjá Vinnumálastofnun á viðkomandi ekki rétt á fjárhagsaðstoð þar sem hann hlýtur atvinnuleysisbætur frá dagsetningu umsóknar. Einstaklingar sem bíða eftir endurmati á endurhæfingarlífeyri eða örorkumati frá Tryggingastofnun Ríkisins geta sótt um fjárhagsaðstoð í formi láns sem endurgreiðist að fenginni afgreiðslu Tryggingastofnunar Ríkisins í formi eingreiðslu. 6. grein Tímabil samþykkis hverju sinni Fjárhagsaðstoð skal að öðru jöfnu vera greidd einn mánuð í senn og skulu ákvarðanir um aðstoð að jafnaði ekki ná yfir lengra tímabil en þrjá mánuði. Í þeim tilvikum þegar ljóst þykir að aðstæður umsækjanda muni ekki breytast, er heimilt að samþykkja aðstoð til allt að 6 mánaða. Að þeim tíma liðnum skal mál umsækjanda skoðað sérstaklega með tilliti til þarfa hans fyrir frekari fjárhagsaðstoð, ráðgjöf og endurhæfingu. Í undantekningartilvikum er heimilt að veita fjárhagsaðstoð vikulega vegna sérstakra aðstæðna. 7. grein Fjárhagsaðstoð aftur í tímann Fjárhagsaðstoð er aldrei skylt að veita lengra aftur í tímann en fjóra mánuði frá því að umsókn er lögð fram sbr. 3. mgr. 21. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. Rökstuddar ástæður verða að réttlæta slíka aðstoð og verður skilyrðum fjárhagsaðstoðar að vera fullnægt allt það tímabil sem sótt er um.
ll. kafli Umsókn um fjárhagsaðstoð 8. grein Umsókn og fylgigögn Umsókn um fjárhagsaðstoð skal leggja fram hjá félagsþjónustu Akraneskaupstaðar. Umsókn skal undirrituð á sérstakt umsóknareyðublað, þar sem fram komi upplýsingar um umsækjanda, þar með talið lögheimili, fjölskyldugerð, nafn maka og barna á framfæri og nákvæmar upplýsingar um tekjur og eignir. Umsókn skal fylgja yfirlit yfir eignir og tekjur vegna síðastliðins árs, yfirlit yfir allar tekjur og aðrar greiðslur til umsækjanda og maka hans þann mánuð sem umsóknin er lögð fram þar með taldar greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins, innlendum og erlendum lífeyrissjóðum, Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bönkum, sparisjóðum, lánastofnunum eða öðrum aðilum. Ennfremur barnabætur, mæðra og feðralaun. Umsækjandi getur veitt öðrum skriflegt umboð til að sækja um aðstoð fyrir sína hönd. Þegar umsækjandi er atvinnulaus skal hann framvísa skráningarskírteini frá Vinnumálastofnun er staðfestir atvinnuleysi hans. Njóti umsækjandi réttar til atvinnuleysisbóta skal hann framvísa dagpeningavottorði. Hafi umsækjandi ekki skráð sig hjá vinnumiðlun, án viðhlítandi skýringa, missir hann hlutfallslega rétt til fjárhagsaðstoðar það tímabil. Umsækjandi sem er óvinnufær skal framvísa gildu læknisvottorði sérfræðings þar sem fram kemur hvers eðlis veikindi viðkomandi eru og hversu lengi umsækjandi verður óvinnufær að mati sérfræðings.
9. grein Upplýsingar um tekjur og fjárhag umsækjanda Starfsmenn félagsþjónustu geta, ef þörf krefur, aflað frekari upplýsinga um tekjur og eignir umsækjanda, m.a. hjá skattayfirvöldum, atvinnurekendum, Tryggingastofnun ríkisins, Atvinnuleysistryggingasjóði og lífeyrissjóðum, innlendum og erlendum. Skal það gert í samráði við umsækjanda. Neiti umsækjandi að veita upplýsingar um fjárhag sinn eða maka stöðvast afgreiðsla umsóknar hans. lll. kafli Réttur til fjárhagsaðstoðar Mat á fjárþörf og útreikningur fjárhagsaðstoðar 10. grein Mat á fjárþörf Við ákvörðun á fjárhagsaðstoð skal grunnfjárþörf til framfærslu, sbr. 11. gr. lögð til grundvallar og frá henni dregnar heildartekjur sbr. 12. gr. Tekið skal tillit til sérstakra aðstæðna eftir því sem við á, sbr. reglur þessar.
11. grein Grunnfjárhæð Framfærsla barna ekki talin með Fjárhagsaðstoð til einstaklinga 18 ára og eldri getur numið allt að kr. 129.240.- á mánuði, hér eftir nefnd grunnupphæð. Fjárhagsaðstoð til hjóna og fólks í skráðri sambúð getur numið allt að kr. 206.784.- á mánuði (kr. 129.240 x 1,6). Mat á fjárhagsaðstoð er óháð því hvort barn eða börn búa á heimilinu. Undantekning er þegar umsækjandi hefur skertar barnabætur í kjölfar skilnaðar/sambúðarslita og skal þá tekið tillit til skerðingarinnar við mat á þjónustuþörf. Fjárhæðir verða endurskoðaðar af fjölskylduráði árlega í tenglsum við gerð fjárhagsáætlunar. 12. grein Tekjur umsækjanda Allar tekjur einstaklings og maka ef við á, í þeim mánuði sem sótt er um og mánuðinum á undan eru taldar með við mat á fjárþörf. Mæðra og feðralaun reiknast umsækjanda til tekna. Með tekjum er hér átt við allar tekjur einstaklings og maka, sem ekki eru sérstaklega til framfærslu barna, þ.e. atvinnutekjur, allar skattskyldar tekjur TR, greiðslur úr lífeyrissjóðum, atvinnuleysisbætur, leigutekjur o.s.frv. Eigi umsækjandi rétt á atvinnuleysisbótum, skal reikna þær honum til tekna, hvort sem hann hefur stimplað sig eða ekki, nema framvísað sé læknisvottorði. Miða skal við heildartekjur áður en skattar eru dregnir frá. Við afgreiðslu fjárhagsaðstoðar er ekki gert ráð fyrir kostnaði vegna barna enda greiðist hann af barnabótum, barnabótaauka og meðlögum ef við á. Greiðslur vegna barna teljast ekki til tekna enda ekki reiknað með framfærslukostnaði vegna þeirra við mat á fjárþörf. Barnabætur skal þó kanna sérstaklega, sbr. 2. mgr. 11. gr. þessara reglna. Húsaleigu- og vaxtabætur eru ekki taldar til tekna. Gert er ráð fyrir að húsnæðiskostnaði verði fyrst og fremst mætt með greiðslum vaxta- og húsaleigubóta, en einnig er gert ráð fyrir honum í grunnfjárhæð. 13. grein Sérákvæði Atvinnurekendur, sjálfstætt starfandi einstaklingar og fólk í hlutastörfum Atvinnurekendur og sjálfstætt starfandi einstaklingar, sem hafa lægri tekjur en sem nemur grunnfjárhæð, eiga rétt á fjárhagsaðstoð að því tilskildu að þeir hafi stöðvað atvinnurekstur og leitað réttar síns til atvinnuleysisbóta í samræmi við ákvæði laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 12/1997. Sé umsækjandi sjálfstætt starfandi og/eða launþegi í hlutastarfi með tekjur undir grunnfjárhæð skal gerð krafa um að viðkomandi skrái sig hjá vinnumiðlun og leiti að fullu starfi. 14. grein Ungmenni 18-24 ára Ungu atvinnulausu fólki á aldrinum 18-24 ára sem býr hjá foreldri/foreldrum, sem hafa tekjur á eða undir viðmiðunarmörkum skal reiknast ½ grunnupphæð á mánuði eða mismunur á þeirri upphæð og eigin tekjum þeirra. Meðlag sem ungmenni kunna að fá greitt vegna náms reiknast sem tekjur. Hafi einstaklingur, sem fellur undir ofangreint, forsjá barns skal viðkomandi reiknuð fjárhagsaðstoð til framfærslu að fullu. Unglingar 18 ára og yngri eiga ekki rétt á fjárhagsaðstoð í eigin nafni.
15. grein Námsmenn Námsmenn sem stunda lánshæft nám hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna njóta ekki réttar til fjárhagsaðstoðar. Aðrir námsmenn eiga ekki rétt til fjárhagsaðstoðar til framfærslu nema þeir sem uppfylla skilyrði um námsstyrk skv. 18. grein þessara reglna.
16. grein Áfengis- og vímuefnaneysla Heimilt er að synja umsækjendum um fjárhagsaðstoð sem eru í neyslu áfengis og/eða annarra vímuefna en bjóða þeim aðstoð til að fara í áfengis- og vímuefnameðferð hjá viðurkenndum meðferðaraðilum á Íslandi. Heimilt er að veita þessum einstaklingum hálfa grunnfjárhæð í sérstökum undantekningar-tilfellum þegar skráning í meðferð liggur fyrir.
17. grein Fangar Einstaklingar sem afplána fangelsisdóm eiga ekki rétt á fjárhagsaðstoð. Það sama gildir um samfélagsþjónustu þar sem samfélagsþjónusta telst afplánun refsivistar.
lV. kafli Heimildir vegna sérstakra aðstæðna 18. grein Aðstoð til foreldra vegna barna á þeirra framfæri
A. Heimilt er að veita sérstaka fjárhagsaðstoð til foreldra, sem hafa haft tekjur undanfarna fjóra mánuði sem eru við eða lægri en grunnfjárhæðin. Um er að ræða: 1) Aðstoð við greiðslu leikskólagjalda að hámarki kr. 10.000 á mánuði. 2) Aðstoð við greiðslu fyrir skólamáltíðir kr. 3.000 á mánuði. 3) Aðstoð við greiðslu fyrir skóladagvist umfram kr. 3.000 á mánuði. Ætíð skal vera um tímabundna aðstoð að ræða sem sætir endurskoðun á sex mánaða fresti. B. Í þeim tilvikum þar sem um er að ræða sérstök meðferðar- og/eða stuðningssjónarmið eða fyrirbyggjandi starf á sviði barnaverndar, er heimilt að veita foreldrum styrk sem nemur heildarkostnaði eða hluta hans vegna daggæslu barns í heimahúsum, leikskóla, skólamáltíða, skóladagvistar, sumardvalar, skólagjalda og/eða þátttöku barns í þroskandi félags- og tómstundastarfi. Ætíð skal liggja fyrir samkomulag um félagslega ráðgjöf. Ætíð skal vera um tímabundna samþykkt að ræða, sem sætir endurskoðun á þriggja mánaða fresti. C. Heimilt er að veita tekjulágum foreldrum fjárstyrk vegna náms 16 og 17 ára barna þeirra. Hér er átt við foreldra sem hafa haft tekjur á eða undir grunnfjárhæð undanfarna 6 mánuði eða lengur. Skal styrkurinn miða að því að greiða áætlaðan bókakostnað og skólagjöld. Hámarksaðstoð skal miðast við þriðjung grunnfjárhæðar. D. Heimilt er að veita fæðingarstyrk til foreldra sem eru að eiga sitt fyrsta barn og eru með tekjur við eða undir viðmiðunarmörkum og hafa átt við félagslega erfiðleika að etja. Aðstoðin er hugsuð til þess að kaupa útbúnað vegna barnsins s.s. vagn, rúm o.s.frv. Hámarksaðstoð skal miðast við hálfa grunnfjárhæð. E. Heimilt er að veita fermingarstyrk til foreldra sem eru með tekjur við eða undir viðmiðunarmörkum. Miða skal við hálfa grunnfjárhæð. 19. grein Námsstyrkir Námsstyrki er heimilt að veita í eftirfarandi tilvikum og aðstoðin miðast við grunnfjárhæð ásamt almennum skólagjöldum, innritunarkostnaði og bókakostnaði eða að hámarki því sem nemur þriðjungi grunnfjárhæðar: a) til einstaklinga/einstæðra foreldra 18 – 24 ára sem átt hafa í miklum félagslegum erfiðleikum og hafa ekki lokið grunnskóla eða framhaldsskóla.Viðkomandi þurfa að hafa haft atvinnutekjur undir eða við grunnfjárhæð sl. tólf mánuði. Aðstoðin skal vera liður í umfangsmeiri vinnu starfsmanna félagsþjónustu sem miðar m.a. að því að gera viðkomandi kleift að lifa efnahagslega sjálfstæðu lífi. b) til einstaklinga sem hafa verið atvinnulausir án bótaréttar eða þegið fjárhagsaðstoð í sex mánuði eða lengur og hafa ekki lokið grunnnámi sem gefur rétt á námsláni. Leggja þarf inn umsókn tveimur mánuðum áður en námið hefst. Starfsmaður og námsmaður skulu gera með sér samkomulag um hvernig skuli staðið að skilum varðandi skólasókn, námsframvindu og/eða einkunnir. Einkunnum skal þó ætíð skilað í annarlok. Miðað skal við að námið leiði til þess að nemandi geti síðar hafið nám sem er lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Ákvarðanir um námskostnað skulu teknar fyrir hverja önn og er heimilt að halda námsaðstoð áfram með hliðsjón af námsframvindu að hámarki í þrjár annir. Meðlag sem umsækjandi kann að fá vegna náms reiknast honum til tekna.
20. grein Styrkur vegna húsbúnaðar
Fjárhagsaðstoð til kaupa á húsbúnaði er heimil í eftirfarandi tilvikum:
a) til einstaklings sem hefur lægri tekjur en sem nema grunnfjárhæð, er eignalaus og er að stofna heimili eftir virka endurhæfingu eða dvöl á stofnun.
b) til ungs fólks á aldrinum 18 - 24 ára, sem er eignalaust með tekjur við eða undir grunnfjárhæð, hefur átt í miklum félagslegum erfiðleikum og er að stofna heimili í fyrsta sinn. Viðmiðunarmörk aðstoðar eru sem nemur einni grunnfjárhæð en ef um flutning á sambýli er að ræða er miðað við hálfa grunnfjárhæð. Húsbúnaðarstyrkir greiðast einu sinni. 21. grein Styrkur eða lán til fyrirframgreiðslu húsaleigu og til tryggingar húsaleigu. Heimilt er að veita þeim sem hafa haft tekjur við eða undir grunnfjárhæð sl. tvo mánuði lán eða styrk til fyrirframgreiðslu húsaleigu. Þinglýstur húsaleigusamningur skal liggja fyrir. Miða skal við að leigufjárhæð sé í samræmi við leigu á almennum markaði. Heimilt er að veita styrk eða lán til greiðslu tryggingagjalds vegna húsaleigu sem svarar þriggja mánaða leigu. Skilyrði er að viðkomandi hafi ekki aðgang að lánafyrirgreiðslu hjá bönkum eða lánastofnunum. Hámarksaðstoð er kr. 250.000.
22. grein Greiðsla sérfræðiaðstoðar I. Heimilt er að veita einstaklingum í eftirtöldum aðstæðum fjárhagsaðstoð til greiðslu viðtala hjá félagsráðgjöfum, geðlæknum og sálfræðingum, ef það er liður í umfangsmeiri aðstoð og fyrirsjáanlegt að eigi sé hægt að veita þjónustuna innan félagsþjónustu Akraneskaupstaðar. Einnig getur aðstoðin verið veitt vegna annars konar sérfræðikostnaðar t.d. lækniskostnaðar. a) einstaklingum sem búa við mikla og langvarandi félagslega erfiðleika. b) einstaklingum eða fjölskyldum sem hafa orðið fyrir alvarlegum áföllum, svo sem alvarlegu ofbeldi. Viðmiðunarmörk aðstoðar eru hálf grunnfjárhæð á ári.
II. Heimilt er að veita fjárhagsaðstoð til greiðslu nauðsynlegra tannlækninga til einstaklinga sem hafa haft tekjur við grunnfjárhæð undanfarna 12 mánuði. Heimildin nær einnig til barna umsækjanda. a) Viðmiðunarmörk aðstoðar eru þriðjungur grunnfjárhæðar á ári.
b) Kostnaðaráætlun tannlæknis skal fylgja með umsókn. 23. grein Útfararstyrkir
Heimilt er að veita aðstoð til greiðslu útfararkostnaðar þegar staðreynt hefur verið að dánarbúið geti ekki staðið undir útför hins látna. Viðmiðunarmörk eru 1,6 x grunnfjárhæð. Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsókn um útfararstyrk: • Staðfest ljósrit af skattaframtali hins látna, • launaseðlar og greiðsluyfirlit frá Tryggingastofnun og lífeyrissjóðum, • staðfesting frá stéttarfélagi um rétt til útfararstyrks, • tilkynning sýslumanns um skiptalok á grundvelli eignayfirlýsingar, sbr. 25. gr. laga um skipti á dánarbúum o.fl., nr. 20/1991, eða einkaskiptaleyfi útgefið af sýslumanni til erfingja skv. 31. gr., sbr. 28. gr. laga um skipti á dánarbúum o.fl. Heimilt er að veita eftirlifandi maka lán eða styrk vegna útfararkostnaðar þegar dánarbúið getur ekki greitt fyrir útför hins látna og eignir eftirlifandi maka eru ekki aðrar en íbúðarhúsnæði sem umsækjandi býr í.
24. grein Jólastyrkur
Heimilt er að veita fólki sem hefur tekjur á eða undir grunnfjárhæð jólastyrk er nemur fjórðungi af grunnfjárhæð og er að öllu jöfnu aðeins veittur þeim sem eiga við sérstaka erfiðleika að etja og hafa verið undir eða á viðmiðunarmörkum fjárhagsaðstoðar undanfarna 6 mánuði. Sækja þarf sérstaklega um jólastyrk.
V. kafli. Málsmeðferð sbr. ákvæði stjórnsýslulaga, nr. 37/1993 og ákvæði XV. og XVl. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga 26. grein Könnun á aðstæðum
Kanna skal aðstæður umsækjanda svo fljótt sem unnt er eftir að umsókn um fjárhagsaðstoð hefur borist. Sama á við ef starfsmönnum félagsþjónustu berast upplýsingar um nauðsyn á aðstoð með öðrum hætti. Starfsmenn félagsþjónustu skulu taka ákvörðun í máli svo fljótt sem unnt er og sjá jafnframt til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin. 27. grein Samvinna við umsækjanda
Öflun gagna og upplýsinga skal unnin í samvinnu við umsækjanda. Við meðferð umsóknar og ákvarðanatöku skal leitast við að hafa samvinnu og samráð við umsækjanda eftir því sem unnt er, að öðrum kosti umboðsmann hans ef við á. Umboðsmaður skal framvísa skriflegu umboði. 28. grein Varðveisla gagna, trúnaður og aðgangur að gögnum Málsgögn er varða persónulega hagi einstaklinga skulu varðveitt með tryggilegum hætti. Hafi starfsmenn kynnst einkahögum umsækjanda eða annarra í starfi sínu er þeim óheimilt að fjalla um þau mál við óviðkomandi nema að fengnu samþykki viðkomandi. Umsækjandi á rétt á að kynna sér upplýsingar úr skráðum gögnum sem varða mál hans að svo miklu leyti sem það stangast ekki á við trúnað gagnvart öðrum. 29. grein Leiðbeiningar til umsækjanda
Við afgreiðslu umsóknar skal starfsmaður bjóða umsækjanda félagslega og fjárhagslega ráðgjöf og veita upplýsingar og leiðbeiningar um réttindi sem hann kann að eiga annars staðar. Berist skriflegt erindi sem ekki snertir starfssvið starfsmanna félagsþjónustu Akraneskaupstaðar, skal starfsmaður í samráði við umsækjanda framsenda erindið á réttan stað svo fljótt sem auðið er. 30. grein Niðurstaða og rökstuðningur synjunar Kynna skal niðurstöðu umsóknar svo fljótt sem unnt er. Sé umsókn hafnað í heild eða að hluta skal umsækjandi fá skriflegt svar þar sem ákvörðun er rökstudd með skýrum hætti með vísan til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga og reglna sveitarfélagsins um fjárhagsaðstoð. 31. grein Rangar eða villandi upplýsingar Fjárhagsaðstoð veitt á grundvelli rangra eða villandi upplýsinga af hendi skjólstæðings er ætíð endurkræf og getur félagsþjónusta endurkrafið viðkomandi um fjárhæðina samkvæmt almennum reglum kröfuréttar. Ef sannreynt er við vinnslu máls að upplýsingar sem umsækjandi hefur veitt eru rangar eða villandi stöðvast afgreiðsla umsóknar. 32. grein Heimildir til ákvarðana samkvæmt reglum þessum Starfsmenn félagsþjónustu Akraneskaupstaðar taka ákvarðanir samkvæmt reglum þessum í umboði fjölskylduráðs. 33. grein Kynning á ákvörðun um fjárhagsaðstoð Þar sem starfsmenn félagsþjónustu hafa umboð til að taka ákvörðun um fjárhagsaðstoð skulu þeir kynna umsækjanda niðurstöðu tryggilega og kynna honum um leið rétt hans til að fara fram á að fjölskylduráð Akraneskaupstaðar fjalli um umsóknina. Umsækjandi hefur að öðru jöfnu fjögurra vikna frest til að vísa máli sínu til fjölskylduráðs Akraneskaupstaðar frá því honum barst vitneskja um ákvörðun. Fjölskylduráð skal fjalla um umsókn og taka ákvörðun svo fljótt sem unnt er.
Ákvörðun fjölskylduráðs Akraneskaupstaðar skal kynnt umsækjanda tryggilega og um leið skal honum kynntur réttur hans til málskots til úrskurðarnefndar félagsþjónustu. 34. grein Málskot til úrskurðarnefndar félagsþjónustu Umsækjandi getur skotið ákvörðun félagsmálaráðs til úrskurðarnefndar félagsþjónustu. Skal það gert innan fjögurra vikna frá því umsækjanda barst vitneskja um ákvörðun fjölskylduráðs Akraneskaupstaðar. 35. grein Gildistaka Reglur þessar, sem byggðar eru á leiðbeiningum félags- og tryggingamálaráðuneytisins varðandi reglur sveitarfélaga um fjárhagsaðstoð, taka gildi 1. maí 2010. Við gildistöku þessara reglna falla úr gildi eldri reglur um fjárhagsaðstoð samþykktar í félagsmálaráði Akraness 2. júní 2004 og staðfestar af bæjarstjórn Akraness þann 15. júní 2004. Þannig samþykkt á fundi fjölskylduráðs Akraness 14.04. 2010
og staðfest á fundi bæjarstjórnar Akraness 27.04. 2010.
Akranesi, 15. maí 2010
Helga Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri Fjölskyldustofu
|