ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Þjónusta :: Fjölskyldan :: Félagsþjónusta
Prenta vefsíðu

Félagsþjónusta Akraneskaupstaðar

Félagsþjónusta Akraneskaupstaðar fer með þá málaflokka er lúta að félagslegri þjónustu við íbúa á Akranesi. Innan sviðsins starfar sérstök ráðgjafardeild sem, eins og nafnið ber með sér, er fólki til ráðgjafar og tekur til meðferðar ýmis mál sem tengjast umhverfi og aðstæðum einstaklinga og fjölskyldna á Akranesi.

Helstu verkefni ráðgjafardeildar eru:

Fjárhagsaðstoð

Fjárhagsaðstoð er til einstaklinga og fjölskyldna sem hafa ónógar tekjur sér til framfærslu og geta ekki  séð fyrir sér og sínum sbr. IV. og VI. kafla laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga og reglugerðar um fjárhagsaðstoð samþykkt á Akranesi 15. des. 2000. Fjárhagsaðstoð er einnig veitt þar sem löggjöf mælir fyrir um aðgerðir, sem hafa í för með sér fjárútlát t.d. ákvæði barnaverndarlaga nr. 80/2002  VI.  og XII. kafla.

Barnavernd (sjá erindisbréf fyrir barnaverndarnefnd)

Að barnavernd er unnið samkvæmt lögum um vernd barna og ungmenna nr. 80/2002.  Markmið barnaverndar er að tryggja börnum og ungmennum viðunandi uppeldisskilyrði.  Það er gert með því að styrkja uppeldishlutverk fjölskyldunnar og beita úrræðum til verndar einstökum börnum þegar það á við.  Með börnum er átt við einstakling innan 18 ára aldurs.

Forsjármál

Unnið skv. Barnalögum nr. 20/1992.  Málin berast frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, sýslumannsembættum, dómstólum  og er þá verið að óska eftir umsögn  félagsmálaráðs(barnaverndarnefndar).

Umgengnisréttarmál

Unnið skv. Barnalögum nr.20/1992.  Málin  berast frá sýslumönnum og dómstólum þar sem óskað er eftir umsögn og  eða vinnu við að koma á samkomulagi. Einnig beiðnir um ráðgjöf frá foreldrunum sjálfum til þess m.a. að reyna að fyrirbyggja deilur.

Ættleiðingarmál

Unnið skv. lögum um ættleiðingu nr. 130/1999. Málin berast frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. Gera þarf mjög nákvæma greinargerð um hagi væntanlegra kjörforeldra og hæfni þeirra til að taka að sér kjörbarn.  Þetta á við bæði hvað varðar ættleiðingar erlendis frá og ættleiðingar stjúpbarna.

Fósturmál

Unnið skv. reglugerð um ráðstöfun barna í fóstur nr. 532/1996.  Starfsmenn Félagsþjónustu annast málefni barna sem fara í varanlegt fóstur þar til forsjárskyldur falla niður skv. lögum.  Gerð er úttekt á hæfni og högum þeirra sem óska eftir að gerast fósturforeldrar.

Liðveisla

Unnið skv. lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992. Sveitarfélög skulu eftir föngum gefa fötluðum kost á liðveislu.  Með liðveislu er átt við persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun, t.d. aðstoð við að njóta menningar- og félagslífs.  Umsókn um liðveislu kemur frá hinum fatlaða sjálfum, aðstandendum eða svæðisskrifstofu Vesturlands.

Ferðaþjónusta fatlaðra

Á Akranesi er rekin ferðaþjónusta fyrir fatlaða frá Dvalarheimilinu Höfða. Ferðaþjónusta fatlaðra er ætluð fyrir þá fatlaða sem ekki geta nýtt sér almenningsfarartæki til að geta stundað atvinnu, hæfingu, skóla eða farið til læknis. Félagsmálastjóri úrskurðar um þá einstaklinga sem eiga rétt á þjónustu.

Áfengis- og vímuvarnir

Lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 setja ábyrgð á herðar sveitarfélögum  varðandi aðstoð við einstaklinga og fjölskyldur, sem eiga í erfiðleikum vegna  áfengis- og vímuefnaneyslu.  Í þessu felst m.a. aðstoð við einstaklinga sem eiga við áfengis- og vímuefnavanda að stríða í samvinnu við aðila sem vinna að vímuvarnamálum og ráðgjöf og leitarstarf meðal unglinga.  Félagsmálastjóri og framkvæmdastjóri Fjölskyldustofu hafa með sér samstarf varðandi vímuvarnir.

Húsnæðismál

Samkvæmt lögum um  húsaleigubætur nr. 100/1994, lögum um húsnæðismál nr. 44/1998  og húsaleigulögum nr. 36/ 1997 veita starfsmenn Félagsþjónustu fólki ráðgjöf og alhliða upplýsingar um húsnæðismál og húsaleigusamninga. Umsýsla á félagslegu húsnæði, úthlutun leiguíbúða í eigu bæjarins og greiðsla húsaleigubóta.

 

Hægt er að panta viðtalstíma hjá Félagsþjónustu hjá þjónustuveri Akraneskaupstaðar í síma 433 1000. Starfsmenn taka einnig við barnaverndartilkynningum á skrifstofutíma í síma 433 1000. Utan þess tíma er bent á neyðarlínuna 1-1-2 þar sem hægt er að koma á framfæri barnaverndartilkynningum.

 

Starfsmenn Félagsþjónustu eru:

Sveinborg Kristjánsdóttir, félagsmálastjóri

Netfang: sveinborg.kristjansdottir hjá akranes.is

Ingibjörg Gunnarsdóttir, yfirfélagsráðgjafi

Netfang: ingibjorg.gunnarsdottir hjá akranes.is

Hrefna Rún Ákadóttir, félagsráðgjafi (barneignarleyfi til 1.7.2011)
Netfang: hrefna.run.akadottir hjá akranes.is

Sólveig Sigurðardóttir, félagsráðgjafi (afleysing)

Netfang: solveig.sigurdardottir hjá akranes.is

Stillholti 16-18

300 Akranesi

sími: 433 1000

fax: 433 1090

Vefur: www.akranes.is 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008