Skipulags- og umhverfisstofa
Skipulags- og umhverfisstofa Akraneskaupstaðar hefur yfirumsjón með skipulags- og byggingarmálum, umferðar- og samgöngumálum, fasteignamati og lóðaskráningu, landupplýsingakerfi, umhverfismálum, málefnum slökkviliðs, sorphirðu og sorpeyðingu.
Framkvæmdastjóri stofunnar fer með framkvæmdastjórn fyrir almannavarnanefnd í samvinnu við bæjarstjóra og formann almannavarnanefndar.
Framkvæmdastjóri fer með daglega stjórn stofunnar, samræmir störf og verkefni starfsmanna og ber ábyrgð á verkefnum þess gagnvart bæjarstjóra og bæjarráði.
Skipulags- bygginga- og umhverfismál skipa mikilvægan sess í ört vaxandi bæjarfélagi eins og á Akranesi, þar sem hröð uppbygging nýrra hverfa kallar á skjót en um leið varanleg úrræði. Búa þarf lóðir til bygginga, leggja nýjar götur og ganga frá gangstéttum og umhverfi. Gera þarf ráð fyrir þjónustu skóla og leikskóla og móta umhverfið með þeim hætti að öryggi íbúanna sé tryggt.
Skipulags- og umhverfisnefnd starfar á grundvelli skipulagslaga nr. 123/2010 og tóku gildi 1. janúar 2011 og byggingareglugerðar nr. 441/1998 og önnur lög þar sem nefndin hefur lagalegt hlutverk.
Nefndin er skipuð fimm aðalmönnum og jafnmörgum til vara en um nefndina gilda ákvæði sveitarstjórnarlaga. Sveitarstjórn er heimild í samþykkt sveitarfélagsins að fela nefndinni eða öðrum innan stjórnsýslu sveitarfélagsins heimild til fullnaðarafgreiðslu mála skv. skipulagslögum sbr. 44. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, svo sem afgreiðslu deiliskipulagsáætlana og útgáfu framkvæmdaleyfa. Afgreiðsla á svæðis- og aðalskipulagi er þó ávallt háð samþykki sveitarstjórnar. Að auki er nefndin bæjarstjórn til ráðuneytis í umferðarmálum og skal gera tillögur um bættar samgöngur innan bæjarins og um aukið öryggi fyrir vegfarendur. Nefndin annast húsverndunarmál og er bæjarstjórn til ráðuneytis um þau mál. Skipulags- og byggingarnefnd skal fjalla um ferlimál fatlaðra og stuðla að bættu aðgengi fatlaðra að byggingum og öðrum mannvirkjum.
Skipulags- og umhverfisstofa
Stillholt 16-18, 1. hæð
300 Akranes
sími 433-1000
fax 433-1090
netfang: thorvaldur.vestmann hjá akranes.is
Vefur: www.akranes.is
Opnunartími er frá kl. 09:30 - 12:00 og 12:30 - 15:30.
Ef upplýsingar sem þú leitar að er ekki að finna hér þá er þér velkomið að hafa samband við Þjónustuver Akraneskaupstaðar í síma 433-1000 eða sendið tölvupóst á netfangið: akranes hjá akranes.is