From: Sigrún Helga Sigurjónsdóttir [mailto:sigrunhelga@althingi.is]
Sent: 16. nóvember 2015 15:47
Subject: Til umsagnar 263. mál frá nefndasviði Alþingis, réttur frestur.
Vinsamlegast athugið að rangur frestur var sendur með fyrri umsagnarbeiðni um málið hér að neðan.
Réttur frestur er 30. nóvember 2015.
Kv. Sigrún Helga
16. nóvember 2015
Frá nefndasviði Alþingis.
Ágæti viðtakandi.
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir yður til umsagnar frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (sérstakt framlag úr Jöfnunarsjóði), 263. mál.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 30. nóvember nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is
Ef engar athugasemdir eru þarf ekki að senda sérstaka tilkynningu þess efnis.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/145/s/0290.html
Vakin er athygli á því að nefndastarf fastanefnda Alþingis er rafrænt. Óskað er eftir að umsagnir og erindi verði send á rafrænu formi.
Bent skal á að umsagnir og gögn um málið birtast á vef Alþingis undir fyrirsögninni Innsend erindi á síðu viðkomandi þingmáls.
Leiðbeiningar um ritun umsagna er að finna á vef Alþingis á slóðinni www.althingi.is/vefur/nefndaumsagnir.html
Kveðja,
Sigrún Helga Sigurjónsdóttir
ritari nefndasviðs Alþingis