From: Kristjana Benediktsdóttir [mailto:krb@althingi.is]
Sent: 16. mars 2016 14:41
Subject: Frá nefndasviði Alþingis - 247. mál til umsagnar
16. mars 2016
Frá nefndasviði Alþingis.
Ágæti viðtakandi.
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir yður til umsagnar tillögu til þingsályktunar um mótun stefnu til að draga úr notkun á skaðlegum efnum í neysluvörum, 247. mál.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 4. apríl nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is
Ef engar athugasemdir eru þarf ekki að senda sérstaka tilkynningu þess efnis.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/145/s/0267.html
Vakin er athygli á því að nefndastarf fastanefnda Alþingis er rafrænt. Óskað er eftir að umsagnir og erindi verði send á rafrænu formi.
Bent skal á að umsagnir og gögn um málið birtast á vef Alþingis undir fyrirsögninni Innsend erindi á síðu viðkomandi þingmáls.
Leiðbeiningar um ritun umsagna er að finna á vef Alþingis á slóðinni www.althingi.is/vefur/nefndaumsagnir.html
Kveðja,
--------------------------------------------
Kristjana Benediktsdóttir
skjalavörður
skrifstofu Alþingis, nefndasviði
Austurstræti 8-10
150 Reykjavík
sími 563-0433, fax 563-0430
www.althingi.is