From: Sigrún Helga Sigurjónsdóttir [mailto:sigrunhelga@althingi.is]
Sent: 20. apríl 2016 13:55
Subject: Til umsagnar 638. mál frá nefndasviði Alþingis
Importance: High
20. apríl 2016
Frá nefndasviði Alþingis.
Ágæti viðtakandi.
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir yður til umsagnar tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun 2015-2018, 638. mál.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 27. apríl nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is
Ef engar athugasemdir eru þarf ekki að senda sérstaka tilkynningu þess efnis.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/145/s/1061.html
Vakin er athygli á því að nefndastarf fastanefnda Alþingis er rafrænt. Óskað er eftir að umsagnir og erindi verði send á rafrænu formi.
Bent skal á að umsagnir og gögn um málið birtast á vef Alþingis undir fyrirsögninni Innsend erindi á síðu viðkomandi þingmáls.
Leiðbeiningar um ritun umsagna er að finna á vef Alþingis á slóðinni www.althingi.is/vefur/nefndaumsagnir.html
Kveðja,
Sigrún Helga Sigurjónsdóttir
ritari nefndasviðs Alþingis