From: Sigrún Helga Sigurjónsdóttir [mailto:sigrunhelga@althingi.is]
Sent: 18. desember 2017 15:22
Subject: Til umsagnar 26. mál frá nefndasviði Alþingis
18. desember 2017
Frá nefndasviði Alþingis.
Ágæti viðtakandi.
Velferðarnefnd Alþingis sendir yður til umsagnar frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir, 26. mál.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 15. janúar á netfangið nefndasvid@althingi.is
Ef engar athugasemdir eru þarf ekki að senda sérstaka tilkynningu þess efnis.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/148/s/0026.html
Vakin er athygli á því að nefndastarf fastanefnda Alþingis er rafrænt. Óskað er eftir að umsagnir og erindi verði send á rafrænu formi.
Bent skal á að umsagnir og gögn um málið birtast á vef Alþingis undir fyrirsögninni Innsend erindi á síðu viðkomandi þingmáls.
Leiðbeiningar um ritun umsagna er að finna á vef Alþingis á slóðinni www.althingi.is/vefur/nefndaumsagnir.html
Kveðja,
Sigrún Helga Sigurjónsdóttir
ritari nefndasviðs Alþingis