From: Sigrún Helga Sigurjónsdóttir [mailto:sigrunhelga@althingi.is]
Sent: 22. mars 2018 15:19
Subject: Til umsagnar 389. mál frá nefndasviði Alþingis
22. mars 2018
Frá nefndasviði Alþingis.
Ágæti viðtakandi.
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir yður til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á sviði samgöngu-, fjarskipta-, sveitarstjórnar- og byggðamála, 389. mál.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 5. apríl nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is
Ef engar athugasemdir eru þarf ekki að senda sérstaka tilkynningu þess efnis.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/148/s/0539.html
Vakin er athygli á því að nefndastarf fastanefnda Alþingis er rafrænt. Óskað er eftir að umsagnir og erindi verði send á rafrænu formi.
Bent skal á að umsagnir og gögn um málið birtast á vef Alþingis undir fyrirsögninni Innsend erindi á síðu viðkomandi þingmáls.
Leiðbeiningar um ritun umsagna er að finna á vef Alþingis á slóðinni www.althingi.is/vefur/nefndaumsagnir.html
Bestu kveðjur,
Sigrún Helga
____________________
Sigrún Helga Sigurjónsdóttir
ritari
Skrifstofa Alþingis, nefndasvið
Austurstræti 8-10
150 Reykjavík
sigruns@althingi.is
www.althingi.is
s. 563-0500