Breyting á stjórnskipulagi Akraneskaupstaðar
með gildistöku 1. janúar 2009
Með samþykkt bæjarráðs Akraness 18. júní 2008, í umboði bæjarstjórnar Akraness, var samþykkt breyting á stjórnskipulagi Akraneskaupstaðar. Skipaður var stýrihópur um verkefnið en hann skipaði fyrrv. bæjarstjóri, Gísli S. Einarsson, Jóhann Þórðarson og Þorgeir Jósefsson. Stýrihópurinn tók til starfa á grundvelli samþykktar bæjarráðs og bæjarstjórnar og var fyrsti fundur haldinn 2. júlí 2008. Stýrihópnum var að lokinni samþykkt á skipulaginu falið að fylgja innleiðingu þess eftir.
Markmið með endurskipulagningu stjórnkerfisins er:
- Að skapa einfalt og skilvirkt stjórnkerfi Akraneskaupstaðar
- Að auka skilvirkni og flýta afgreiðslu mála
- Að efla stefnumótandi hlutverk bæjarstjórnar
- Að stjórnkerfi kjörinna fulltrúa og stjórnskipulag starfmanna endurspegli hvort annað
- Að bæta þjónustu við íbúana með því að auðvelda aðgengi þeirra að þjónustu
- Að auka samstarf innan stjórnsýslunnar með auknu teymis- og liðsheildarstarfi
- Að auka þverfaglegt samstarf innan stjórnsýslunnar.
Stjórnkerfið er tvískipt. Annars vegar er pólitíska kerfið með lýðræðislega kjörnum bæjarfulltrúum sem skipa bæjarstjórn auk nefnda sem bæjarstjórn skipar, samkvæmt samþykkt um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar. Með aukinni valddreifingu hafa verið stofnuð tvö ný ráð, fjölskylduráð og framkvæmdaráð, en auk þeirra verður bæjarráð sem fyrr. Ráðin verða skipuð þremur aðalmönnum úr bæjarstjórn og jafnmörgum til vara. Með nýju stjórnskipulagi hefur nefndum auk þess verið fækkað verulega.
Hins vegar er embættismannakerfið með bæjarstjóra í fararbroddi. Stofnaðar hafa verið svokallaðar stofur yfir málaflokka sveitarfélagsins þ.e. Fjölskyldustofa með Helgu Gunnarsdóttur sem framkvæmdastjóra, Framkvæmdastofa með Jón Pálma Pálsson sem framkvæmdastjóra og Skipulags- og umhverfisstofa með Þorvald Vestmann sem framkvæmdastjóra. Þá verður Aðalskrifstofa sem stoðdeild en undir hana heyrir m.a. Þjónustuver sem staðsett er á 1. hæð að Stillholti 16-18 og Akranesstofa. Verkefnastjóri Akranesstofu er Tómas Guðmundsson. Aðrar deildir undir Aðalskrifstofu eru bókhaldsdeild, fjárreiðudeild, launadeild og þjónustudeild sem Þjónustuver heyrir undir.
Yfirmaður Aðalskrifstofu er bæjarstjóri.
Verkefni ráðanna þriggja eru í meginatriðum eftirfarandi:
FJÖLSKYLDURÁÐ
- Fer með yfirumsjón með öllum faglegum málum sem tilheyra málaflokkunum fræðslu- og uppeldismál annars vegar og hins vegar félagsþjónustu. Meðal verkefna ráðsins eru öll mál sem heyra undir lög nr. 66/1995 um grunnskóla, lög nr. 78/1994 um leikskóla, málefni tónlistarskóla og símenntun
- Fjölskylduráð fer með mál sem heyra undir lög nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga og barnaverndarlaga nr. 80/2002, barnalaga nr. 20/1992, lög nr. 44/1998 um húsnæðismál og fleiri lög sem varða málin er heyra undir ráðið. Fjölskylduráð fer einnig með öldrunarmál, æskulýðs-, tómstunda- og íþróttamál og forvarnir samkvæmt lögum um lýðheilsustöð og heilbrigðismál, nr. 18, 2003
- Heimildir til fjárráðstöfunar samkvæmt fjárhagsáætlun
FRAMKVÆMDARÁÐ
- Hefur yfirumsjón með verklegum framkvæmdum á vegum bæjarins svo sem byggingaframkvæmdum, gatnaframkvæmdum og öðrum framkvæmdum. Jafnframt yfirumsjón með rekstri allra eigna opinna svæða, útivistarsvæða, jarðeigna og landa á vegum bæjarins. Framkvæmdaráð fer með stjórn Fasteignafélags Akraneskaupstaðar og þeirra verkefna sem félaginu eru falin
- Heimildir til fjárráðstöfunar samkvæmt fjárhagsáætlun
BÆJARRÁÐ
- Hefur umsjón og eftirlit með stjórnsýslu bæjarins, fjármálum, starfsmannamálum, málum sem falla undir stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 50/1996, lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000, málefnum sem falla undir stjórnir byggðasamlaga eða annarra fyrirtækja sem Akraneskaupstaður á eða á aðild að
- Hefur umsjón með umhverfismálum, bygginga- og skipulagsmálum, brunamálum, hreinlætismálum o.fl. Jafnframt hefur bæjarráð yfirumsjón með verkefnum sem heyra undir bæjarstjóra
- Bæjarráð undirbýr árlega fjárhagsáætlun, semur drög að fjárhagsáætlun A og B hluta Akraneskaupstaðar, stofnana hans og fyrirtækja, að fengnum tillögum hlutaðeigandi ráða og stjórna
- Þá sér bæjarráð um að ársreikningar og langtímaáætlanir A og B hluta Akraneskaupstaðar, stofnana hans og fyrirtækja séu samdir
- Önnur verkefni sem öðrum ráðum eru ekki sérstaklega falin
STJÓRNSKIPULAG STOFA
- Hver stofa heyrir stjórnunarlega undir viðkomandi ráð samkvæmt bæjarmálasamþykkt og skipuriti
- Viðkomandi ráð fer með stjórn stofunnar skv. fjárhagsáætlun
- Erindisbréf til handa stjórn og framkvæmdastjóra
- Skilgreint er hlutverk, helstu verkefni, þjónustustig og önnur atriði tilgreind
- Framkvæmdastjóri, deildastjórar og aðrir starfsmenn móta rekstur viðkomandi stofa
- Fjárheimildir samkvæmt fjárhagsáætlun
- Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegri stjórnun
STARFSSTÖÐVAR OG STARFSMENN
- Öll yfirstjórn Akraneskaupstaðar (bæjarstjóri, framkvæmdastjórar og aðrir starfsmenn stofa) eru til húsa í stjórnsýsluhúsinu Stillholti 16-18
- Afgreiðsla allra stofa er sameiginleg í þjónustuveri á jarðhæð stjórnsýsluhússins
- Afgreiðsla, skrifstofuþjónusta, símaþjónusta, bókhald og fjármál er veitt af aðalskrifstofu og þjónustuveri
- Starfsmenn sem störfuðu að verkefnum sem flytjast á milli stofa, starfa áfram að þeim verkefnum
- Réttindi og skyldur starfsmanna verða þau sömu og áður
- Gert er ráð fyrir að stofur leysi hluta verkefna sinna með þjónustusamningum, reynist það hagkvæmt
Stjórnskipulagið og tilfærslur í starfsmannahaldi tóku gildi 1. janúar 2009.