Fara í efni  

Um heilsueflandi samfélag

 Um heilsueflandi samfélag

 Heilsueflandi samfélag undirritun

Þann 1. október 2019 undirrituðu Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri og Alma D. Möller, landlæknir, samning um innleiðingu Heilsueflandi samfélags á Akranesi. Með samningnum skuldbatt Akraneskaupstaður sig til að innleiða markmið Heilsueflandi samfélags á Akranesi í samráði við Embætti landlæknis og var Akranes 29. sveitarfélag landsins sem leggur í þessa vegferð.   

Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er styðja samfélagið á Akranesi í að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa. Þannig að sveitarfélagið verði sjálfbærara, skilvirkara og eftirsóknarverðara til búsetu. Áhersla er lögð á að bæta lífsgæði íbúanna þar sem andleg og líkamleg heilsa er í öndvegi og stuðlar þannig að ánægðari, hamingjusamari og heilsuhraustari íbúum.

Leiðarljós Heilsueflandi samfélags:

  • Virk þátttaka samfélagsins í heild, þ.m.t. hagsmunaaðila úr öllum geirum.
  • Starfið byggir á bestu þekkingu og reynslu á hverjum tíma.
  • Valda ekki skaða (DO NO HARM)
  • Jöfnuður til heilsu með almennum aðgerðum og aðgerðum sem taka mið af þörfum viðkvæmra hópa.
  • Sjálfbærni, leggja áherslu á að skipuleggja starf og árangur til lengri tíma litið.

Í Heilsueflandi samfélagi er heilsa og líðan allra íbúa í fyrirrúmi í allri stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum og allir geirar hafa hlutverk. Unnið er með áhrifaþætti heilbrigðis og vellíðanar (sjá mynd Áhrifaþættir heilbrigðis og vellíðanar) s.s. félags-, efnahags- og menningarlegar aðstæður, manngert og náttúrulegt umhverfi til að skapa sem ákjósanlegastar aðstæður í lífi, leik og starfi fyrir fólk á öllum æviskeiðum. Holla valið þarf að vera eins auðvelt og kostur er s.s. að hreyfa sig, borða hollt, rækta geðið og ástunda grænan lífsstíl á sama tíma og spornað er gegn áhættuhegðun s.s. neyslu tóbaks, áfengis og annarra vímuefna. Stuðningur við starf Heilsueflandi leikskólagrunnskóla og framhaldsskóla er mikilvægur liður í starfi Heilsueflandi samfélags.

Markvisst lýðheilsustarf í Heilsueflandi samfélögum

Sveitarfélög hafa sjálf frumkvæði að því að gerast Heilsueflandi samfélag. Skilyrðin fyrir þátttöku eru að bæjar-/sveitarstjóri skrifi undir umsókn um þátttöku, skipaður sé þverfaglegur stýrihópur fyrir starfið sem tryggir aðkomu lykilhagsmunaaðila að því og sérstakur tengiliður er tilnefndur. Með undirskrift samnings um Heilsueflandi samfélag einsetja sveitarfélög sér að vinna markvisst lýðheilsustarf, í samræmi við markmið og leiðarljós Heilsueflandi samfélags með stuðningi frá Embætti landlæknis og öðrum sem að starfinu koma. Í markvissu lýðheilsustarfi er bilið á milli gagna, stefna og aðgerða brúað með því að nota lýðheilsuvísa, gátlista og önnur gögn til að meta stöðuna og forgangsraða í samræmi við þarfir hvers samfélags. Miðlægt vefkerfi, sem er í þróun, styður samfélög í að halda utanum starfið, meta framvindu þess og miðla áfram m. a. með sjálfkrafa skýrslum.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00