Fara í efni  

Viðhald gatna og stíga 2025 - óskað eftir tilboðum

Akraneskaupstaður óskar eftir tilboði í viðhald gatna og stíga á Akranesi.

Um er að ræða uppbrot og fjarlægingu steypts yfirborðs, fræsing malbiks, malbikun og gerð kantsteins, steypu gatna og stétta, hellulögn gönguþverana ásamt ýmsum frágangi. Verkefnin eru dreifð um Akranes.

Helstu magntölur: Fræsing 1.300 m2, malbikun 5.000 m2, stéttar 1.200 m2, götuflekar 400 m2, hellulögn 100 m2.

Verklok eru 1.desember 2025.

Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi í gegnum útboðsvef Akraneskaupstaðar, slóð https://akranes.ajoursystem.net/.

Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Fundargerð opnunarfundar verður send öllum bjóðendum.

Tilboðum skal skilað á útboðsvefinn fyrir kl. 14:00 fimmtudaginn 26. júní 2025.

Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00