Fara í efni  

Una Torfa - Sumartúr

Una Torfadóttir er 23 ára söngkona, hljóðfæraleikari, lagahöfundur og alhliða listakona sem hefur einstakt lag á að tengja saman sannleika, hverdagsleika, ást og tónlist og koma því frá sér með þeim hætti að allir sem hlusta skilja og dragast inn í heim Unu og veltast þar um hlæjandi, hlustandi og grátandi.
Una gaf nýverið út sína fyrstu breiðskífu, Sundurlaus samtöl.
„Þessi plata er full af lögum sem ég hef átt lengi og spilað oft. Að vissu leyti er ég að reyna að heiðra nokkrar fortíðar útgáfur af sjálfri mér.”
Á túrnum ætlar Una að ferðast um með gítarleikaranum og kærasta sínum, Hafsteini Þráinssyni, og flytja plötuna í einföldum og fallegum búningi.
„Draumurinn er að Sundurlaus samtöl fái að lifa góðu lífi og festa rætur. Ég opnaði dagbókina og hjartað og ég vona svo innilega að vangaveltur unglings-Unu og mínar og allra sem hjálpuðu mér og henni rati á rétta staði.”

 

14. júlí - Bíóhöllin, Akranesi
15. júlí - Gamla kirkjan, Stykkishólmi
16. júlí - Bragginn, Hólmavík
17. júlí - Vagninn, Flateyri
19. júlí - Sauðárkrókskirkja
20. júlí - Lystigarðurinn, Akureyri
21. júlí - Gamli Baukur, Húsavík
 
   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00