Fara í efni  

Lopapeysan 20 ára! 2024

Lopapeysan er að venju haldin á Írskum Dögum á Akranesi fyrstu helgina í júlí. Í ár verður allt lagt í sölurnar til að fagna 20 ára afmæli hátíðarinnar með stæl. Um er að ræða eina kvöldstund þar sem rjóminn í tónlist mætir ásamt því að boðið verður upp á allskonar afþreyingu. Dagskráin hefst kl:19:30 við Akranesvöll þar sem einn stærsti brekkusöngur landsins fer fram. Tónleikasvæði Lopapeysunnar opnar í framhaldi af því kl: 20:45 og mun fyrsta atriðið stíga á svið kl: 21:15.

Á svæðinu verður meðal annars risa tívolí sem kemur alla leið frá Bretlandi og glæsilegir matarvagnar ásamt ferskum börum sem eru á víð og dreif um festivalið. Tónleikasvæði Lopapeysunnar að sinni verður töluvert breytt og mun stærra, betra og hlakkar okkur ekkert smá til að fagna með ykkur.

Miðasala hefst þann 6. júní kl: 12:00 á tix.is

Ath, það mun bætast í dagskrá:

Bubbi Morthens
GDRN
Úlfur Úlfur
Daníel Ágúst
Aron Can
Sigga Beinteins
Blö bræðurnir Auddi & Steindi
Daniil
Herra Hnetusmjör
Stuðlabandið
Helgi Björnsson
Emmsjé Gauti
Ingi Bauer og svo miklu meira.

ATH! 20 ára aldurstakmark er á hátíðina

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00