Fara í efni  

Mugison spilar í 100 Kirkjum í 100 Póstnúmerum

Það er (án gríns) svoooo geggjuð stemming uppá Skaga - þarna spilaði ég mína fyrstu tónleika sem Mugison og held að ég hafi alltaf haldið tónleika þegar ég hef verið að fara hringinn... allavega oftast, það er svo gaman að hanga með ykkur. Hlakka svoooooo mikið til ❤️🥳
 
Ég er í geggjuðu Tónleika-Maraþoni, ætla að spila í 100 Kirkjum í 100 Póstnúmerum á innan við ári. Hef lengi verið heillaður af öllum þessum kirkjum, þær eru út um allt - í sveitunum, bæjum og öllum hverfum - allstaðar er kirkja - svo fallegar, dulafullar, kósý og spennandi.
 
Ég elska að spila í kirkjum það er eitthvað svo skemmtilega öfgafullt - einsog sum sönglög verði brothættari og fallegri og önnur ýkjast í hina áttina verða gróf og brussuleg. Ég er búinn að sérhanna svið, ljós og hljóðbúnað fyrir þetta tilefni. Verð einn með nokkra gítara, nikku, trommur og kirkjuorgel framtíðarinnar.
Hlakka mjög mikið til að hitta þig í Akraneskirkju.
Stuðkveðja, Mugison.
 
Tónleikarnir eru um 60 mínútur
Verð:
4.500 kr í forsölu
5.000 kr við hurð
   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00