Íþróttamannvirki Akraneskaupstaðar lokuð hluta úr degi vegna námskeiðs þann 8. maí
08.05.2015
Vegna björgunar- og skyndihjálparnámskeiðs starfsmanna íþróttamannvirkja Akraneskaupstaðar þann 8. maí milli kl. 8:00 - 16:30 er Íþróttamiðstöð Jaðarsbökkum aðeins opin á eftirfarandi tímum:
- Frá kl. 06:15 - 08:00
- Frá kl. 16:30 - 22:00
Íþróttahúsið Vesturgötu og Bjarnalaug verða lokuð frá 07:00 - 16:30 og opna aftur kl.16:30 - 21:30.