Viðvera atvinnuráðgjafa á Akranesi
18. apríl kl. 10:00-12:00
Fundir og ráðstefnur
Suðurgata 57, 2. hæð (gamla Landsbankahúsið)
Atvinnuráðgjafi frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi er með viðveru á Akranesi einu sinni í mánuði fram að vori. Viðveran er milli kl. 10-12 að Suðurgötu 57, hæð (gamla Landsbankahúsið).
Hlutverk atvinnuráðgjafa er að vera einstaklingum, fyrirtækjum og sveitarstjórnum til aðstoðar á sviði atvinnumála. Atvinnuráðgjafi starfar á ráðgjafar- og þróunarsviði SSV og er verkefni þeirra að aðstoða ofangreinda aðila með eftirfarandi hætti:
- Aðstoð við að greina vandamál
- Leiðbeiningar um hvar er hægt að fá aðstoð, bæði fjárhagslega og tæknilega frá stoðkerfum atvinnulífsins.
- Aðstoð við gerð umsókna til sjóða.
- Aðstoð við gerð rekstrar- og kostnaðaráætlana.
- Aðstoð við markaðsmál
- Upplýsingagjöf, fundir o.fl.