Fara í efni  

Fréttasafn

Opið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands

Veittir verða atvinnuþróunar-, nýsköpunar- og menningarstyrkir ásamt stofn- og rekstarstyrkjum til menningarverkefna. Á heimasíðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, er að finna reglur og viðmið varðandi styrkveitingar.
Lesa meira

Akraneskaupstaður hlýtur styrk til uppsetningar á þráðlausu neti á opnum svæðum

Nýverið sótti Akraneskaupstaður um styrk til Evrópusambandsins um uppsetningu á þráðlausu neti á opnum svæðum á Akranesi, WiFi4EU. Alls hlutu 2.800 sveitarfélög styrk af þeim 13.000 sem sóttu um innan EES-svæðisins og var Akraneskaupstaður þar á meðal ásamt Reykjavíkurborg og Skagafirði.
Lesa meira

Heitavatnslaust á Akranesi

Heitavatnslaust verður mánudaginn 17. desember frá kl. 9.00 - 14.00, á Esjubraut 2-43, Esjuvöllum 1-22, Dalbraut 14-16, Þjóðbraut 11-13 og Skarðsbraut 17-19.
Lesa meira

Sterk fjárhagsstaða Akraneskaupstaðar - 3,1 milljarður í fjárfestingar og framkvæmdir á næstu fimm árum

Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2019 og þriggja ára áætlun 2020 til 2022 var samþykkt á fundi bæjarstjórnar Akraness þriðjudaginn 11. desember síðastliðinn. Einnig var fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun samþykkt.
Lesa meira

Heitavatnslaust í hluta bæjarins vegna tengingar á stofnlögn hitaveitu

Tilkynning frá Orkuveitu Reykjavíkur: Vegna tengingar á stofnlögn hitaveitu fimmtudaginn 13. desember 2018 í hringtorgi við Esjubraut / Kalmansbraut á Akranesi verður heitavatnslaust í hluta bæjarins og lækkaður þrýstingur í hluta bæjarins.
Lesa meira

Breyting á akstursleið Akranesstrætó

Tímabundnar breytingar standa yfir um þetta leyti eða þar til ársloka 2019 á meðan framkvæmdir eru við byggingu nýs fimleikahúss við Háholt/Vesturgötu. Breytingin felst í því að stoppistöð nr. 22 fer frá Háholti og á Vesturgötu og stoppistöð nr. 29a fer frá Merkigerði og á Vesturgötu.
Lesa meira

Ályktun bæjarstjórnar Akraness um stórfellda uppbyggingu samgöngukerfisins með álagningu flýtigjalda

Á fundi bæjarstjórnar Akraness þann 11. desember var svohljóðandi bókun lögð fram og samþykkt einróma:„Bæjarstjórn Akraness fagnar þeirri viðhorfsbreytingu sem orðið hefur á Alþingi Íslendinga til stórfelldra samgöngubóta sem fyrirhugaðar eru á næstu árum og verða fjármagnaðar með álagningu flýtigjalda. Akurnesingar hafa verið í fararbroddi...
Lesa meira

Guðlaug á Langasandi formlega opnuð almenningi

Í dag þann 8. desember var Guðlaug á Langasandi formlega opnuð almenningi við hátíðlega athöfn. Fjölmennt var við opnunina og var það Ragnar Baldvin Sæmundsson formaður skipulags- og umhverfisráðs Akraness sem flutti opnunarræðu. Að loknum ræðuhöldum var ekkert eftir nema að vígja laugina og voru það fulltrúar skipulags- og umhverfisráðs,
Lesa meira

Bæjarstjórnarfundur 11. desember

undur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 11. desember kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á fundinn á FM 95,0 og horfa á beina útsendingu á www.facebook.com/akraneskaupstadur.
Lesa meira

Opið hús - kynningarfundur vegna fyrirhugaðra breytinga á aðal- og deiliskipulagi

Opið hús - kynningarfundur verður fimmtudaginn 6. des. 2018 frá kl. 12.00 til 17.00 vegna fyrirhugaðra breytinga á aðal- og deiliskipulagi á eftirtöldu skipulagi: •Aðal- og deiliskipulag Grenja hafnarsvæði H3, Bakkatúni 30-32 •Aðal- og deiliskipulag vegna Flóahverfis. •Aðal- og deiliskipulagsbreyting vegna Smiðjuvallasvæðis.
Lesa meira
   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00