Bæjarstjórnarfundur 12. maí n.k.
08.05.2015
1214. fundur bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 12. maí kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á beina útsendingu frá fundinum á FM 95,0.
DAGSKRÁ FUNDARINS MÁ NÁLGAST HÉR
Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir:
- Sjálfstæðisflokkurinn í Gamla Kaupfélaginu, laugardaginn 9. maí kl. 10.30.
- Frjálsir með Framsókn í Haraldarhúsi, Vesturgötu 32, kjallara, gengið inn frá palli, mánudaginn 11. maí kl. 20.00.
- Björt framtíð í Vitakaffi Stillholti 16-18, mánudaginn 11. maí kl. 20.00.
- Samfylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti 16-18, laugardaginn 9. maí kl. 11.00.