Umferðaröryggi á Akranesi – ábendingar óskast
17.03.2015
Undirbúningur að gerð umferðaröryggisáætlunar fer nú fram hjá Akraneskaupstað. Óskað er eftir ábendingum um atriði sem stuðlað geta að bættu öryggi í bæjarumferðinni, bæði fyrir gangandi, hjólandi og akandi.
Hægt er að skila inn ábendingum í gegnum heimasíðu Akraneskaupstaðar eða með því að senda tölvupóst á akranes@akranes.is með fyrirsögninni „umferðaröryggi“. Frestur til að skila inn ábendingum er til og með 1. maí n.k.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Akraneskaupstaðar og hjá skipulags- og umhverfissviði í síma 433 1000.