Fara í efni  

Vökudagar 2024

Menningarhátíðin Vökudagar verður haldin dagana 24. október til 3. nóvember 2024.
 
💙Vilt þú vera með sýningu, viðburð, smiðju eða jafnvel einhverjar nýjungar?
💙Átt þú rými sem gæti hentað fyrir sýningu/viðburð/smiðju?
💙Vill fyrirtækið þitt taka þátt með einhverjum hætti?
 
Vökudagar hafa verið haldnir síðan árið 2002 og farið vaxandi ár hvert. Að hátíðinni stendur hópur listafólks og menningarunnenda frá Akranesi sem í samstarfi við Akraneskaupstað skapa öfluga og fjölskrúðuga viðburði þar sem fjölbreytt listform og menning fá að njóta sín. Það ættu öll að finna eitthvað við sitt hæfi og hvetjum við bæjarbúa og gesti til þátttöku.
 
Fyrirspurnir og hugmyndir má senda á mannlif@akranes.is
   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00