Fara í efni  

Tímabundin afnot af bæjarlandi

Óheimilt er að nota land í eigu Akraneskaupstaðar, jafnt svæði utan skilgreindra lóða sem innan óúthlutaðra lóða, án leyfis Akraneskaupstaðar.

Hægt er að sækja um leyfi fyrir tímabundnum afnotum af bæjarlandi Akraneskaupstaðar, utan skilgreindra lóðarmarka, svo sem af opnum svæðum, gatnamannvirkjum og gönguleiðum, séu fyrir því lögmætar og málefnalegar ástæður og ef nauðsyn krefur, einkum vegna framkvæmda. Undir þetta falla einnig stærri viðburðir, rof á yfirborði vegna lagna og strengja. Þessar reglur eiga einnig við um tímabundin afnot af óúthlutuðum lóðum.

Tímabundin afnot af bæjarlandi eru veitt í samræmi við reglur bæjarstjórnar frá 9.7.2024 sjá hér
Með umsókninni samþykkir umsækjandi að bera ábyrgð á að afnotin, merkingar og frágangur, fylgi öllum ákvæðum reglugerðar og leyfis.

Sækja skal um afnotin í gegnum þjónustugátt á heimasíðu Akraneskaupstaðar sjá hér . Umsókn skal berast með minnst 3 vikna fyrirvara, nema bilun eða neyðartilvik komi upp, en þá skal senda inn umsókn sem fyrst.

Ef afnotin leiða til truflunar á umferð, skal einnig tilkynna þau sérstaklega sjá nánari upplýsingar hér.

Nánari upplýsingar eru veittar í þjónustuveri Akraneskaupstaðar.

Í gjaldskrá fyrir skipulags- og umhverfismál grein 3.4 eru upplýsingar um gjöld fyrir afnotaleyfi og viðbótardagsleigu ef þörf er á, sjá hér.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00