Öflug ungmenni hreinsuðu hluta af strandlengju Akraness
08.06.2021
Nemendur í 10.bekk í Grundaskóla unnu öflugt hreinsunarstarf á dögunum, en starfið var unnið í fjáröflunarskyni fyrir útskriftaferð.
Útskriftanemar í Grundaskóla hafa ýmist safnað fyrir ferðinni með brauðsölu í skólanum sem og gangbrautagæslu. Covid faraldurinn setti vissulega strik í reikninginn hjá þeim þar sem brauðsalan var ekki opin og gangbrautargæsla takmörkuð þar sem nemendur voru á víð og dreif um sveitafélagið vegna framkvæmda á skólahúsnæðinu núna í vor.
Kalmannsvík að Elínarhöfða, Breiðin, Langisandur að Leyni ásamt Garðalundi og Klapparholti voru hreinsuð ásamt því að möl var færð til á safnarsvæðinu
Þökkum þessum kraftmiklu krökkum fyrir þeirra framlag til þess að fegra bæinn okkar