Fara í efni  

Ungmennaþing Vesturlands 25.-27.október.

Ungmennaþing Vesturlands verður haldið í sumarbúðunum í Ölver, Hvalfjarðarsveit helgina 25.-27.október.

Um er að ræða samstarfsverkefni sveitafélaga á Vesturlandi, ungmennaráðs Vesturlands og Samtaka sveitafélaga á Vesturlandi (SSV) og er fjármagnað af Sóknaráætlun Vesturlands.

Markmiðið með þinginu er að:

  • fá ungt fólk af öllu Vesturlandi saman
  • stuðla að uppbyggingu í þágu ungs fólks á öllu Vesturlandi
  • skapa vettvang fyrir samtal ungmenna við ráðamenn
  • kynnast öðrum ungmennum, njóta og hafa gaman

Þátttakendur munu ræða stöðu ungmenna á Vesturlandi frá ýmsum hliðum auk þess sem boðið verður upp á kynningar sem tengjast málefnum ungs fólks og ungmennaráða.

Þingið er ætlað ungu fólki á aldrinum 14 – 25 ára.

Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 40 manns og er lágmarksfjöldi tryggður frá hveru sveitarfélagi. Þátttakendum yngri en 18 ára þarf að fylgja ábyrgðaraðili.

Þátttaka er gjaldfrjáls og innifalið í þátttöku er gisting, matur, vinnugögn og annað tilheyrandi.

Ferðakostnaður er á höndum sveitafélaganna sjálfra.

Sjá auglýsingu

Skráningafrestur er til og með 18.október 2024

https://www.torpid.is/is/moya/news/ungmennathing-vesturlands-25-27oktober


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00