Bæjarráð
1.Elskaðu friðinn - styrkbeiðni
1305179
2.Tilnefning í stjórn Byggðasafnsins í Görðum
1303079
Bæjarráð tilnefnir Hjördísi Garðarsdóttur sem aðalmann og Reynir Þór Eyvindarson til vara, Valdimar Þorvaldsson sem aðalmann og Stefán Lárus Pálsson til vara, Björn Guðmundsson sem aðalmann og Svein Kristinsson til vara, Þorgeir Jósefsson sem aðalmann og Margréti Snorradóttur til vara og leggur til við bæjarstjórn að tilnefningin verði staðfest.
3.Ráðstefna í Molde 11.-12. júní n.k. um atvinnuuppbyggingu á norðlægum slóðum
1301001
Dagskrá ráðstefnu í Molde í Noregi um atvinnuuppbyggingu á norðlægum slóðum um lögð fram til kyningar. Sveitarfélögum á Íslandi, Noregi og á Grænlandi sem byggja atvinnu sína á stóriðju er boðið á ráðstefnuna.
4.Samþykkt um stjórn Akraneskaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar
1302073
Bæjarráð samþykkir drög að samþykktum um stjórn Akraneskaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar og vísar drögunum til seinni umræðu í bæjarstjórn.
5.Kartöflugarðar - vatnslögn
1305195
Bæjarráð samþykkir umsókn til Orkuveitunnar um lagningu vatnslagnar í kartöflugarða. Kostnaðurinn, kr. 354.479 gjaldfærist af liðnum 21-95-4995, óviss útgjöld.
6.Bæjarlistamaður Akraness 2013
1304192
Helstu breytingar eru að starfsstyrknum skuli vera úthlutað þann 17. júní ár hvert í stað Vökudaga, auk þess sem upphæð verði kr. 500.000,- .
7.Endurskoðun á yfirtöku málefna fatlaðra 2013 - starfshópur
1211118
Bæjarráð samþykkir erindið.
8.Þjónustumiðstöð fyrir eldri borgara
1302181
Bæjarráð tilnefnir Svein Kristinsson í starfshóp um þjónustumiðstöð fyrir aldraða í stað Hrannar Ríkharðsdóttur.
9.Starfshópur um jafnréttisstefnu
1205094
Bæjarráð tilnefnir Gunnhildi Björnsdóttur í jafnréttishóp Akraneskaupstaðar í stað Hrannar Ríkharðsdóttur.
10.Vitinn - félag áhugaljósmyndara - húsnæðismál
1304032
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning á milli Akraneskaupstaðar og áhugaljósmyndarafélagsins Vitans ásamt viðauka.
11.Einstaklingsmál vegna innheimtuaðgerða
1305124
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til fjölskyldusviðs með beiðni um að Þorri verði aðstoðaður við að fá skattaskuldina fellda niður sem fyrst.
12.Suðurgata 64 - framtíð húss
1305178
Bæjarráð felur framkvæmdastjóra umhverfis-og framkvæmdasviðs að ræða við bréfritara.
13.Dagur íslenskrar náttúru 2013.
1305154
Lagt fram til kynningar.
14.Kútter Sigurfari - staða mála
903133
15.Stöðvun á nauðungarsölu án dómsúrskurðar
1305167
Lagt fram til kynningar.
16.OR - Planið framvinduskýrsla
1204074
Lagt fram til kynningar.
17.Lánamál Orkuveitu Reykjavíkur - Trúnaðarmál
1304161
Bæjarráð samþykkir erindið.
18.Íbúðir ÍBL á Akranesi í maí 2013
1305010
Bæjarstjóri kynnir viðræður við Íbúðalánasjóð vegna íbúða í eigu sjóðsins á Akranesi. Bæjarráð fagnar hugmyndum um samkomulag við sjóðinn um uppbyggingu í miðbænum og felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu í samstarfi við umhverfis-og framkvæmdasvið.
19.Lífeyrissjóður Akraneskaupstaður - sameining lífeyrissjóða.
1304114
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.
20.Uppgjör skuldar
1301288
Bæjarráð samþykkir að fallast á tilboð Lögmanna Laugardals ehf. um greiðslu skuldar vegna fasteignagjalda fyrir Ægisbraut 9, kr. 600.000,- enda verði greiðslan innt af hendi eigi síðar en 1. september næstkomandi.
21.Íþróttamannvirki - fatapeningar
1303168
Bæjarráð samþykkir kaup á vinnufatnaði að upphæð kr. 450.000,- sem verði tekin af lið 21-95-4995, óviss útgjöld.
Fundi slitið - kl. 17:40.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk að upphæð 340 þúsund krónur sem verði gjaldfærður af liðnum 21-89-5948, ýmsir styrkir.