Fara í efni  

Bæjarstjórn

1297. fundur 27. ágúst 2019 kl. 17:00 - 23:24 í bæjarþingsalnum, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Rakel Óskarsdóttir aðalmaður
  • Valgarður L. Jónsson aðalmaður
  • Elsa Lára Arnardóttir aðalmaður
  • Sandra Margrét Sigurjónsdóttir aðalmaður
  • Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir aðalmaður
  • Einar Brandsson aðalmaður
  • Ragnar B. Sæmundsson aðalmaður
  • Bára Daðadóttir aðalmaður
  • Ólafur Adolfsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri
  • Steinar Dagur Adolfsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri
Dagskrá
Forseti býður fundarmenn velkomna til fundar nú að loknu sumarleyfi bæjarstjórnar.

Forseti óskar eftir að tekið verði inn með afbrigðum mál nr. 1908313 Áskorun til ríkisstjórnar Íslands um stefnubreytingu í málefnum orkukræfs iðnaðar, verður dagskrárliður nr. 1 verði það samþykkt.

Samþykkt 9:0.

1.Áskorun til ríkisstjórnar Íslands um stefnubreytingu í málefnum orkukræfs iðnaðar

1908313

Áskorun til ríkisstjórnar Íslands um stefnubreytingu í málefnum orkukræf iðnaðar. Um er að ræða sameiginlega áskorun bæjarstjórnar Akraness og sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
Til máls tóku:
ÓA sem leggur fram eftirfarandi áskorun bæjarstjórnar Akraness og sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar til ríkisstjórnar Íslands um stefnubreytingu í málefnum orkukræfs iðnaðar:

"Bæjarstjórn Akraness og sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar komu saman til sameiginlegs fundar mánudaginn 26. ágúst 2019 vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem upp er komin í atvinnumálum á Grundartanga og leitt getur til verulegs samdráttar í starfsemi orkukræfs iðnaðar og fækkun starfa.

Núverandi atvinnustarfsemi á Grundartangasvæðinu hefur byggst upp á löngum tíma og er gríðarlega mikilvæg fyrir sveitarfélögin á Vesturlandi, Akranes, Hvalfjarðarsveit og í vaxandi mæli Borgarbyggð. Nærri lætur að um 1.100 bein störf séu í þeim 20 atvinnufyrirtækjum sem þar reka starfsemi og annar eins fjöldi starfa tengist þjónustu við þessi fyrirtæki og þá sérstaklega stærstu fyrirtækin Elkem og Norðurál.

Ötullega hefur verið unnið að því undanfarin ár á vettvangi samstarfs Þróunarfélags Grundartanga, Norðuráls, Elkem og Faxaflóahafna að finna, greina og nýta þau tækifæri sem svæðið býr yfir til vaxtar og aukinnar verðmætasköpunar. Þar hefur sérstök áhersla verið lögð á umhverfismál, nýsköpun og fullnýtingu efnis- og auðlindastrauma á sviði orkuvinnslu og orkuendurvinnslu sem nýtt verði til uppbyggingar nýrra fyrirtækja með tilheyrandi fjölgun starfa. Því miður er nú margt sem bendir til þess að sú mikla vinna sé unnin fyrir gíg vegna breytinga á rekstrarumhverfi orkukræfs iðnaðar á Íslandi. Afleiðingar þessa má m.a. sjá í niðurstöðu gerðardóms um orkuverð til Elkem á Grundartanga.

Stjórnvöld á Íslandi sköpuðu orkukræfum iðnaði góð skilyrði til rekstrar með sanngjörnu raforkuverði og fengu með því til sín öflug fyrirtæki sem mörg hver hafa verið í rekstri um áratugaskeið, þau hafa greitt há laun og haft mjög jákvæð áhrif á uppbyggingu sinna nærsamfélaga. Jafnframt hafa þau lagt mikið af mörkum til uppbyggingar raforkuinnviða samfélagsins í heild. Að auki er rétt að benda á mikilvægi framleiðsluvara fyrirtækja á Grundartanga sem eru lykilframleiðendur ýmissa sérvara sem leitað er eftir til lausnar í þeim orkuskiptum sem nú eru að eiga sér stað og kallað er eftir á heimsvísu.

Nú er hins vegar svo komið að rekstrarumhverfi orkukræfs iðnaðar á Íslandi hefur versnað til muna og það samkeppnisforskot sem hér var í orkuverði er algjörlega horfið. Kjörnir fulltrúar á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit kalla eftir svörum um hver tók ákvörðun um þessa stefnubreytingu og á hvaða vettvangi hún var tekin.

Birtingarmynd þessarar ákvörðunar er framganga Landsvirkjunar, fyrirtækis sem er að öllu leyti í eigu ríkisins og hefur í krafti einokunarstöðu í raforkusölu á stórnotendamarkaði knúið fram mjög miklar verðhækkanir á raforku til orkukræfs iðnaðar. Forstjóri fyrirtækisins hefur endurtekið lýst því yfir að hlutverk þess sé meðal annars verðmætasköpun en fram til þessa hefur sú verðmætasköpun eingöngu snúist um að hámarka arðsemi Landsvirkjunar en ekki að horfa til heildarhagsmuna þjóðarinnar. Því vilja kjörnir fulltrúar sveitarfélaganna minna á að í fyrirhugaðri orkustefnu má finna eftirfarandi leiðarljós:

- Að hámarka samfélagslegan ávinning af nýtingu orku.
- Stuðningur stefnunnar við atvinnustefnu og samspil við lykilatvinnugreinar.
- Stuðningur stefnunnar við byggðastefnu og jákvæða byggðaþróun til lengri tíma.

Með hliðsjón af framansögðu skora bæjarstjórn Akraness og sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar á íslensk stjórnvöld að endurskoða núverandi stefnu í málefnum orkukræfs iðnaðar á Íslandi og setja Landsvirkjun eigendastefnu án tafar sem tekur m.a. mið af ofangreindum leiðarljósum í framtíðarorkustefnu Íslands.

27. ágúst 2019

Bæjarstjórn Akraness
Bára Daðadóttir (S) (sign)
Elsa Lára Arnardóttir (B) (sign)
Einar Brandsson (D) (sign)
Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir (S) (sign)
Ólafur Adolfsson (D) (sign)
Ragnar B. Sæmundsson (B) (sign)
Rakel Óskarsdóttir (D) (sign)
Sandra Margrét Sigurjónsdóttir (D) (sign)
Valgarður Lyngdal Jónsson (S) (sign)

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar
Atli Viðar Halldórsson (Í) (sign)
Björgvin Helgason (Á)(sign)
Brynja Þorbjörnsdóttir (H) (sign)
Bára Tómasdóttir (Á) (sign)

Daníel Ottesen (Á) (sign)
Guðjón Jónasson (Á) (sign)
Ragna Ívarsdóttir (Í) (sign)

Framhald umræðu:
RÓ, ELA, VLJ og SFÞ.

Forseti ber áskorunina upp til samþykktar.

Samþykkt 9:0.

2.Skýrsla bæjarstjóra 2019

1902203

Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri fer yfir helstu atriði í störfum sínum frá 29. maí 2019.
Til máls tóku:
ELA, EBr, RÓ, RBS, ELA, SMS, GJJ, ÓA, Gert er fundarhlé.

Fundi framhaldið:
GJJ og RÓ.

3.Deiliskipulag Skógarhverfi 2. áf. rað- og parhús

1904143

Kynningarfundur var haldinn 9. maí og aftur 14. júní 2019. Skipulaginu var breytt vegna ábendinga sem bárust á fundinum 9. maí 2019. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Skógarhverfis 2. áfanga vegna lóða við Fagralund og Akralund, lögð fram.

Breyting á deiliskipulagi Skógarhverfis 2. áfanga felst m.a. í að breyta einbýlishúsalóðum við Fagralund 1, 3, 5, 7 og 2, 4, 6 í tvær þriggja íbúða raðhúsalóðir og þrjár parhúsalóðir (12 íbúðir). Fjölbýlishúsalóðir við Akralund 8, 10, 12 og 14 er breytt í tvær fjögurra íbúða raðhúsalóðir (ein til tvær hæðir) og eina parhúsalóð (ein til tvær hæðir) í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Deiliskipulagsbreytingin var auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010, frá 4. júlí til og með 17. ágúst 2019. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatíma.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt, send Skipulagsstofnun til yfirferðar og auglýsing um gildistöku hennar birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Til máls tekur:

EBr, ber upp tillögu um að málinu verði vísað aftur til skipulags- og umhverfisráðs.
SFÞ, EBr, RBS.
Forseti ber upp breytingartillögu EBr.
Tillagan var felld með 8 (VLJ/ELA/RBS/BD/GJJ/ÓA/RÓ/SMS) atkvæðum gegn 1 (EBr).

Forseti ber upp eftirfarandi tillögu:

Bæjarstjórn Akraness samþykkir samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 breytingu á deiliskipulagi Skógarhverfis 2. áfanga sem felst m.a. í að breyta einbýlishúsalóðum við Fagralund 1, 3, 5, 7 og 2, 4, 6 í tvær þriggja íbúða raðhúsalóðir og þrjár parhúsalóðir (12 íbúðir), breyta fjölbýlishúsalóðum við Akralund 8, 10, 12 og 14 í tvær fjögurra íbúða raðhúsalóðir (ein til tvær hæðir) og eina parhúsalóð (ein til tvær hæðir).

Bæjarstjórn Akraness samþykkir að breytingin verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar og að auglýsing um gildistöku hennar verði birt í B-deild Stjórnartíðinda.

Samþykkt 8:1 (VLJ/ELA/RBS/BD/GJJ/ÓA/RÓ/SMS):(EBr).

4.Lækjarflói 1 og 3 - sameining lóða

1907136

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að sameining lóðanna verði samþykkt í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010, sbr. ákvæði í deiliskipulagi Flóahverfis.
Forseti ber upp eftirfarandi tillögu:
Bæjarstjórn Akraness samþykkir skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010 sameiningu lóðanna Lækjarflói nr. 1. og Lækjarflói nr. 3, sbr. ákvæði í deiliskipulagi Flóahverfis.

Samþykkt 9:0.

5.Fundargerðir 2019 - bæjarráð

1901005

3376. fundargerð bæjarráðs frá 12. júní 2019.
3377. fundargerð bæjarráðs frá 27. júní 2019.
3378. fundargerð bæjarráðs frá 3. júlí 2019.
3379. fundargerð bæjarráðs frá 11. júlí 2019.
3380. fundargerð bæjarráðs frá 25. júlí 2019.
3381. fundargerð bæjarráðs frá 16. ágúst 2019.
ELA um fundargerð nr. 3376, dagskrárliði nr. 2, nr. 6 og nr. 7.
ELA um fundargerð nr. 3377, dagskrárliði nr. 5, nr. 8, nr. 10, nr. 20, nr. 23 og nr. 34.
ELA um fundargerð nr. 3378, dagskrárliði nr. 1 og nr. 4.
ELA um fundargerð nr. 3379, dagskrárliði nr. 1, nr. 6, nr. 7 og nr. 8.
ELA um fundargerð nr. 3380, dagskrárlið nr. 2.
ELA um fundargerð nr. 3381, dagskrárliði nr. 1 og nr. 3.
GJJ um fundargerð nr. 3376, dagskrárlið nr. 6.
GJJ um fundargerð nr. 3380, dagskrárlið nr. 1.
SMS um fundargerð nr. 3376, dagskrárliði nr. 2 og nr. 7.
SMS um fundargerð nr. 3377, dagskrárliði nr. 4 og nr. 11.
SMS um fundargerð nr. 3378, dagskrárlið nr. 3.
SMS um fundargerð nr. 3381, dagskrárlið nr. 1.
SFÞ um væntanlegt 6 mánaða uppgjör sem verður lagt fram á fundi bæjarráðs þann 29. ágúst næstkomandi.
EBr um fundargerð nr. 3377, dagskrárlið nr. 5.
EBr um fundargerð nr. 3380, dagskrárlið nr. 1.
EBr um fundargerð nr. 3381, dagskrárlið nr. 1.
EBr um fundargerð nr. 3376, dagskrárlið nr. 6.

Forseti óskar eftir að varaforseti GJJ taki við fundarstjórn þar sem hann óski eftir að taka til máls.
GJJ tekur við fundarstjórn.
VLJ um fundargerð nr. 3376, dagskrárlið nr. 6.
VLJ tekur að nýju við stjórn fundarins.

RÓ um fundargerð nr. 3376, dagskrárliði nr. 8 og nr. 10.
RÓ um fundargerð nr. 3377, dagskrárlið nr. 34.
RÓ um fundargerð nr. 3381, dagskrárlið nr. 1.
RÓ um fundargerð nr. 3379, dagskrárlið nr. 4.
RÓ um fundargerð nr. 3380, dagskrárlið nr. 1.
BS um fundargerð nr. 3380, dagskrárlið nr. 1.
RBS um fundargerð nr.3377, dagskrárlið nr. 11.
RBS um fundargerð nr. 3381, dagskrárlið nr. 1.
RBS um fundargerð nr. 3380, dagskrárlið nr. 1.
SMS um fundarðgerð nr. 3377, dagskrárlið nr. 11.
SMS um fundargerð nr. 3380, dagskrárlið nr. 1.
RÓ um fundargerð nr. 3380, dagskrárlið nr. 1.
ELA um fundargerð nr. 3376, dagskrárliði nr. 1 og nr. 7.
ELA um fundargerð nr. 3381, dagskrárlið nr. 1.
ELA um fundargerð nr. 3379, dagskrárlið nr. 9.
ELA um fundargerð nr. 3376, fundarliði nr. 6 og nr. 10.
ELA um fundargerð nr. 3377, dagskrárlið nr. 4.

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

6.Fundargerðir 2019 - skóla- og frístundaráð

1901007

108. fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 18. júní 2019.
109. fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 2. júlí 2019.
110. fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 15. ágúst 2019.
111. fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 20. ágúst 2019.
Til máls tóku:
BD um fundargerð nr. 108, dagskrárliði nr. 1 og nr. 4.
BD um fundargerð nr. 110, dagskrárliði nr. 1 og nr. 2.
BD um fundargerð nr. 111, dagskrárliði nr. 1 og nr. 5.

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

7.Fundargerðir 2019 - skipulags- og umhverfisráð

1901008

117. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 18. júní 2019.
118. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 24. júní 2019.
119. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 1. júlí 2019.
120. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 8. júlí 2019.
121. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 22. júlí 2019.
122. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 12. ágúst 2019.
123. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 19. ágúst 2019.
Til máls tóku:
RBS um fundargerð nr. 117, dagskrárliði nr. 1, nr. 4 og nr. 16.
RBS um fundargerð nr. 120, dagskrárlið nr. 20.
RBS um fundargerð nr. 121, dagskrárliði nr. 6 og nr. 7.
RBS um fundargerð nr. 122, dagskrárliði nr. 3 og nr. 4.
RBS um fundargerð nr. 123, dagskrárlið nr. 7.
EBr um fundargerð nr. 122, dagskrárliði nr. 1, nr. 5, nr. 6, nr. 7, nr. 8, nr. 9, nr. 10 og nr. 11.
RBS um fundargerð nr. 122, dagskrárliði nr. 1, nr. 5, nr. 6, nr. 7, nr. 8, nr. 9, nr. 10 og nr. 11.
EBr um fundargerð nr. 122, dagskrárlið nr. 9.
RBS um fundargerð nr. 122, dagskrárlið nr. 9.

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

8.Fundargerðir 2019 - velferðar- og mannréttindaráð

1901006

108. fundargerð velferðar- og mannréttindaráðs frá 24. júlí 2019.
109. fundargerð velferðar- og mannréttindaráðs frá 21. ágúst 2019.
Til máls tóku:
GJJ um fundargerð nr. 108, dagskrárliði nr. 2, nr. 4 og nr. 6.
GJJ um fundarger nr. 109, dagskrárlið nr. 3.

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

9.Fundargerðir 2019 - Sorpurðun Vesturlands hf.

1903119

Fundargerð stjórnar Sorpurðunar Vesturlands frá 3. apríl 2019.
Fundargerð stjórnar Sorpurðunar Vesturlands frá 19. júní 2019.
Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

10.Fundargerðir 2019 - Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili

1901010

97. fundargerð stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis frá 27. maí 2019.
98. fundargerð stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis frá 24. júní 2019.
99. fundargerð stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis frá 16. júlí 2019.
Til máls tóku:
ELA um fundargerð nr. 97, dagskrárlið nr. 4.
ELA um fundargerð nr. 98, dagskrárlið nr. 3.
ELA um fundargerð nr. 99, dagskrárliði nr. 1 og nr. 2.
ÓA spyr um stöðu fýsileikakönnunar á breyttu rekstrarformi hjúkrunarheimilisins (sjálfseignarstofnun) sbr. fyrri umræðu þar að lútandi.
ÓA um fundargerð nr. 97, dagskrárlið nr. 4.
ÓA um fundargerð nr. 99, dagskrárlið nr. 2.
RÓ um fund á Heilbrigðisstofnun Vesturlands þann 15. ágúst síðastliðinn þar sem heilbrigðisráðherra kynnti heilbrigðisstefnu ríkisins og til umræðu var m.a. núverandi staða Höfða.
SFÞ um nefndan fund á Heilbrigðisstofnun Vesturlands.
ELA um stöðu fýsileikakönnunar á breyttu rekstrarformi hjúkrunarheimilisins (sjálfseignarstofnun).
ÓA þakkar veitt svör.

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

11.Fundargerðir 2019 - Faxaflóahafnir

1901022

180. fundargerð stjórnar Faxaflóahafna frá 17. maí 2019.
181. fundargerð stjórnar Faxaflóahafna frá 21. júní 2019.
EBr um fundargerð nr. 181, dagskrárliði nr. 1 og nr. 12a.
SMS um fundargerð nr. 181, dagskrárlið nr. 1.
RBS um fundargerð nr. 181, dagskrárliði nr. 1 og nr. 12a.
EBr um fundargerð nr. 181, dagskrárliði nr. 1 og nr. 12a.

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

12.Fundargerðir 2019 - Orkuveita Reykjavíkur

1901021

275. fundargerð stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 27. maí 2019.
276. fundargerð stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 24. júní 2019.
Forseti óskar eftir að varaforseti GJJ taki við fundarstjórn þar sem hann óski eftir að taka til máls.
GJJ tekur við fundarstjórn.
VLJ um fundargerð nr. 276, dagskrárliði nr. 3, nr. 4 og nr. 5. Jafnframt ræðir VLJ um kynningu forstjóra og fjármálastjóra OR fyrir bæjarfulltrúum sem fór fram fyrr í dag.
EBr um fundargerð nr. 276, dagskrárlið nr. 3.
ÓA um fundargerð nr. 276, dagskrárliði nr. 3 og nr. 14.
SFÞ um fundargerð nr. 276, dagskrárlið nr. 3.
VLJ um fundargerð nr. 276, dagskrárlið nr. 3.

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

VLJ tekur að nýju við stjórn fundarins.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

13.Fundargerðir 2019 - Samband íslenskra sveitarfélaga

1901018

871. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 29. maí 2019.
872. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 21. júní 2019.
Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 23:24.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00