Fara í efni  

Bæjarstjórn

1177. fundur 29. október 2013 kl. 17:00 - 19:30 í bæjarþingsalnum, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Sveinn Kristinsson forseti bæjarstjórnar
  • Gunnar Sigurðsson aðalmaður
  • Guðmundur Páll Jónsson aðalmaður
  • Ingibjörg Valdimarsdóttir aðalmaður
  • Þröstur Þór Ólafsson aðalmaður
  • Einar Brandsson aðalmaður
  • Dagný Jónsdóttir aðalmaður
  • Gunnhildur Björnsdóttir aðalmaður
  • Einar Benediktsson aðalmaður
  • Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
  • Steinar Dagur Adolfsson framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Sædís Alexía Sigurmundsdóttir verkefnastjóri
Dagskrá
Forseti bæjarstjórnar, Sveinn Kristinsson stýrði fundi og bauð fundarmenn velkomna til fundarins.
Forseti óskar eftir að taka inn með afbrigðum, sbr. c. lið 15. gr. Samþykktar um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar, mál nr. 1310188 þar sem Magnús Freyr Ólafsson biðst lausnar sem varabæjarfulltrúi og frá setu í nefndum Akraneskaupstaðar og 1310201 þar sem Steinunn K. Pétursdóttir biðst lausnar frá setu í barnaverndarnefnd Akraneskaupstaðar.

1.Bæjarstjórn - 1176

1310004

Fundargerð bæjarstjórnar frá 8. október 2013.

Staðfest 9:0.

2.Höfði - fundargerðir 2013

1302040

33. og 34. fundargerð stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis frá 19. og 23. október 2013.

Lagðar fram.

3.OR - fundargerðir 2013

1301513

192. fundargerð Orkuveitu Reykjavíkur frá 20 september 2013.

Lögð fram.

4.Faxaflóahafnir sf. - fundargerðir 2013

1301219

113. fundargerð stjórnar Faxaflóahafna frá 11. október 2013.

Lögð fram.

5.Framkvæmdaráð - 108

1310005

Fundargerð framkvæmdaráðs frá 15. október 2013.

Lögð fram.

6.Framkvæmdaráð - 107

1310001

Fundargerð framkvæmdaráðs frá 5. október 2013.

Lögð fram.

7.Skipulags- og umhverfisnefnd - 99

1310008

Fundargerð skipulags- og umhverfisnefndar frá 14. október 2013.

Lögð fram.

8.Bæjarráð - 3203

1310020

Fundargerð bæjarráðs frá 22. október 2013.

Lögð fram.

9.Bæjarráð - 3202

1310019

Fundargerð bæjarráðs frá 20. október 2013.

Lögð fram.

10.Bæjarráð - 3201

1310018

Fundargerð bæjarráðs frá 19. október 2013.

Lögð fram.

11.Bæjarráð - 3200

1310014

Fundargerð bæjarráðs frá 18. október 2013.

Lögð fram.

12.Bæjarráð - 3199

1310013

Fundargerð bæjarráðs frá 16. október 2013.

Lögð fram.

13.Bæjarráð - 3198

1310006

Fundargerð bæjarráðs frá 10. október 2013.

Lögð fram.

14.Skýrsla bæjarstjóra 29. október 2013.

1301269

Bæjarstjóri flytur skýrslu síðasta mánaðar.

15.Lausn frá nefndarsetu í barnaverndarnefnd

1310201

Steinunn K. Pétursdóttir biðst lausnar frá setu í barnaverndarnefnd Akraneskaupstaðar vegna flutnings úr bæjarfélaginu.

Einar Brandsson mun taka sæti Steinunnar sem aðalmaður í barnaverndarnefnd.

Samþykkt 9:0.

16.Lausn frá nefndarsetu og pólitískum ábyrgðastöðum

1310188

Magnús Freyr Ólafsson biðst lausnar sem varabæjarfulltrúi og frá setu í nefndum Akraneskaupstaðar af persónulegum ástæðum.

Samþykkt: 9:0

17.Deiliskipulag Akurshóls (Akursbraut 5).

1307062

Erindi skipulags- og umhverfisnefndar dags. 15. október 2013, þar sem gerð er grein fyrir tillögu að deiliskipulagi Akurshóls. Tillagan var auglýst, engar athugasemdir bárust. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Lagt til að málinu verði frestað og fengin greinargerð frá framkvæmdastjóra Umhverfis- og framkvæmdasviðs um málsmeðferðina.

Frestun samþykkt 9:0

18.Aðalskipulagsbreyting Akurshóll (Akursbraut 5).

1305212

Erindi skipulags- og umhverfisnefndar dags. 15. október 2013, þar sem gerð er grein fyrir tillgöu að breytingu á aðalskipulagi Akraness 2005 - 2017. Tillagan var auglýst og engar athugasemdir bárust.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Til máls tóku: EBr, GP og SK.

Lagt til að málinu verði frestað og fengin greinargerð frá framkvæmdastjóra Umhverfis- og framkvæmdasviðs um málsmeðferðina.

Frestun samþykkt 9:0

19.Vesturgata 83 - deiliskipulagsbreyting Krókatún - Vesturgata.

1303108

Erindi skipulags- og umhverfisnefndar dags. 15. október 2013, þar sem gerð er grein fyrir breytingu á deiliskipulagi Krókatúns - Vesturgötu, vegna lóðarinnar við Vesturgötu 83. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að breytingartillagan verði grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynnt verði fyrir eigendum fasteigna við Vesturgötu 79, 81, 83 og 85.

Samþykkt 9:0

20.Mótun velferðarstefnu.

1209111

Fjölskylduráð samþykkti á fundi sínum þann 17. september 2013, drög að velferðarstefnu og vísar þeim til umfjöllunar og staðfestingar í bæjarstjórn.

Til máls tóku: DJ, ÞÓ, og GB.

Bæjarstjórn staðfestir velferðarstefnu Akraneskaupstaðar.

Samþykkt 9:0.

21.Mótun skólastefnu.

1201103

Fjölskylduráð samþykkti á fundi sínum þann 17. september 2013, drög að skólastefnu og vísar þeim til umfjöllunar og staðfestingar í bæjarstjórn.

Til máls tóku: IV, DJ og SK.

Bæjarstjórn staðfestir skólastefnu Akraneskaupstaðar.

Samþykkt 9:0.

22.Menningarverðlaun Akraneskaupstaðar 2013.

1309004

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 10. október s.l. reglur um veitingu menningarverðlauna og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkti einnig tilnefningu menningarmálanefndar vegna Menningarverðlauna Akraneskaupstaðar fyrir árið 2013 og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir reglur um veitingu menningarverðlauna.

Samþykkt 9:0.

Bæjarstjórn staðfestir tilnefningu menningarmálanefndar um veitingu Menningarverðlauna Akraneskaupstaðar 2013.

Samþykkt 8:0.

Sveinn tekur ekki þátt í atkvæðagreiðslu skv. 16. gr. Samþykktar um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar.

23.Styrkir - málsmeðferðarreglur.

1310139

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 22. október s.l. nýjar málsmeðferðarreglur vegna styrkumsókna sem berast Akraneskaupstað og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.

Samþykkt 9:0.

24.Byggðasafnið í Görðum - skipulagsskrá.

1310065

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 22. október s.l. drög að skipulagsskrá fyrir Byggðasafnið í Görðum og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.

Samþykkt 9:0.

25.Fjárhagsáætlun til þriggja ára, 2015-2017.

1308093

Á fundi bæjarráðs sem haldinn var þann 22. október 2013, var fjallað um fyrirliggjandi gögn vegna fjárhagsáætlunar 2014 - 2017, ásamt samstæðuáætlun. Bæjarráð samþykkti að vísa áætluninni til fyrri umræðu í bæjarstjórn 29. október 2013.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa áætluninni og fyrirliggjandi tillögum til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Samþykkt: 9:0

26.Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar 2014.

1310061

Á fundi bæjarráðs sem haldinn var þann 22. október 2013, var fjallað um fyrirliggjandi gögn vegna fjárhagsáætlunar A og B hluta Akraneskaupstaðar ásamt samstæðuáætlun. Bæjarráð samþykkti að vísa áætluninni til fyrri umræðu í bæjarstjórn 29. október 2013.
Tillögur til bæjarstjórnar samhliða framlagningu frumvarps að fjárhagsáætlun 2014 lagðar fram.

Til máls um frumvarpið tóku ÞÓ, EBr, GPJ og GS.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir áætluninni og lagði fram eftirfarandi tillögur sem lagt er til að verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn með fjárhagsáætluninni.
Tillögur til bæjarstjórnar samhliða framlagningu frumvarps að fjárhagsáætlun 2014

1. Álagning gjalda 2014.

Bæjarstjórn Akraness samþykkir að eftirfarandi forsendur verði lagðar til grundvallar álagningu útsvars, fasteigna- og sorphreinsunargjalda og lóðaleigu á árinu 2014.
a. Álagt útsvar verði óbreytt, 14,48% vegna launa ársins 2014.
b. Fasteignaskattur verði óbreyttur og því eftirfarandi á árinu 2014:
i. 0,3611% af álagningastofni íbúðarhúsa ásamt lóðarleiguréttindum erfðafestulanda og jarðeigna skv. a-lið 3. greinar laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
ii. 1,32% af öllum fasteignum skv. b-lið 3. greinar laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
iii. 1,65% af öllum öðrum fasteignum skv. c-lið 3. greinar laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
c. Sorphreinsunargjald vegna íbúðarhúsnæðis hækki um 3% og verði kr. 16.095 fyrir hverja íbúð miðað við tvær sorptunnur og sorpeyðingargjald hækki um 3% og verði kr. 13.725. Gjöldin verði innheimt með fasteignagjöldum.
d. Lóðarleiga af nýjum lóðum og endurnýjuðum samningum verði 1,598% af fasteignamatsverði atvinnulóða og 1,055% af fasteignamatsverði íbúðarhúsalóða og verði innheimt með fasteignagjöldum.
e. Lóðarleiga af eldri lóðum (samningar dagsettir fyrir 1. janúar 2004) sem lögð er á hvern fermetra (m2) lóðar tekur viðmið af breytingum sem verða á byggingarvísitölu.
f. Gjalddagar fasteignagjalda á árinu 2014 verði 15. janúar, 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl, 15. maí, 15. júní, 15. júlí, 15. ágúst, 15. september og 15. október en eindagi gjaldanna verði 30 dögum síðar eða næsta virkan dag beri hann upp á helgidag.
g. Veitt verði ívilnun á fasteignaskatti á árinu 2014, til elli- og örorkulífeyrisþega í samræmi við sérstakar reglur bæjarstjórnar um lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega.

Samþykkt 9:0

2. Þjónustugjaldskrár 2014.

Bæjarstjórn Akraness samþykkir að almennar þjónustugjaldskrár hækki samkvæmt áætluðum vísitöluhækkunum, um 3% þann 1. janúar 2014.

Samþykkt 9:0

3. Fjárfestingaráætlun 2014.
Bæjarstjórn Akraness samþykkir að ráðstafa fjárhæð kr. 274.000.000 vegna ýmissa framkvæmda á árinu 2014. Um er að ræða gatnagerð frá Innnesvegi inn á Sólmundarhöfða, kostnað vegna fráveitu- og regnvatnslagna, eldhúsaðstöðu í Grundaskóla, gatnagerð í gamla miðbænum, seinni áfanga í endurgerð Akratorgs, húsnæðismál fyrir félag eldri borgara á Akranesi og til byggingar bátaskýlis fyrir byggðasafnið í Görðum. Framkvæmdaráði er falið að koma með tillögur að sundurliðun fjárfestingaráætlunar og leggja fyrir bæjarráð eigi síðar en 1. febrúar næstkomandi.

4. Framkvæmdaáætlun 2014.
Bæjarstjórn Akraness samþykkir að ráðstafa fjárhæð kr. 78.024.000 vegna ýmissa framkvæmda við viðhald og rekstur gatna, göngustíga og opinna svæða á árinu 2014. Framkvæmdaráði er falið að koma með tillögur að framkvæmdaáætlun og leggja fyrir bæjarráð eigi síðar en 1. febrúar næstkomandi.

5. Viðhald fasteigna og lóða.
Bæjarstjórn Akraness samþykkir að ráðstafa fjárhæð kr. 83.340.000 til almenns viðhalds og húsumsjónar í Eignasjóði og Fasteignafélagi Akraneskaupstaðar slf. á árinu 2014.
6. Stjórnmálasamtök á Akranesi - 2014.

Bæjarstjórn Akraness samþykkir með vísan til 5. gr. laga nr. 162/2006, að gera ráð fyrir framlagi í fjárhagsáætlun ársins 2014 til starfsemi stjórnmálaflokka á Akranesi að fjárhæð kr. 1.000.000.

7. Tillaga um styrk til FVA - tækjakaup 2014.

Bæjarstjórn Akraness samþykkir að veita fjárhæð kr. 2.000.000 til Fjölbrautaskóla Vesturlands vegna endurnýjunar tækjabúnaðar á verkstæðum iðnbrauta.

8. Búnaðar- og áhaldakaup 2014 - ráðstöfun fjármuna.

Bæjarstjórn Akraness samþykkir að gera ráð fyrir sjóði vegna endurnýjunar tækja og áhalda og húsbúnaðar hjá stofnunum bæjarins. Í fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir kr. 16.545.000 sem stofnanir kaupstaðarins geta sótt um fjárveitingu úr, til þess sviðs sem stofnunin heyrir undir. Bæjarráð tekur endanlega ákvörðun um úthlutun fjármuna.

9. Langtímaveikindi starfsmanna 2014 - ráðstöfun fjármuna.

Bæjarstjórn Akraness samþykkir að gera ráð fyrir kr. 16.793.000 í fjárhagsáætlun vegna langtímaveikinda starfsmanna. Stofnanir kaupstaðarins geta sótt um fjárveitingu til þess sviðs sem stofnunin heyrir undir. Bæjarráð tekur endanlega ákvörðun um úthlutun fjármuna.

10. Aukning á stöðugildi í barnavernd til eins árs.

Bæjarstjórn samþykkir 40% viðbótarstöðugildi vegna aukinna verkefna í barnavernd til eins árs. Endurmeta skal stöðuna við fjárhagsáætlunargerð 2015. Áætlaður viðbótarkostnaður er kr. 2.855.000.

11. Breyting á stöðugildi og starfsheiti verkefnastjóra á fjölskyldusviði.

Bæjarstjórn Akraness samþykkir að veita fjárhæð kr. 2.280.000 vegna breytingar á starfsheiti og aukningu á stöðugildi úr 80% í 100%. Breytingin er sú að verkefnastjóri á fjölskyldusviði verður deildarstjóri skólaþróunar og sérfræðiþjónustu og sinnir því starfi í 100% stöðuhlutfalli. Þessi breyting er í samræmi við nýtt stjórnskipulag Akraneskaupstaðar sem var samþykkt í bæjarstjórn 13. desember 2012 og skipurit sem var samþykkt í bæjarstjórn 27. mars 2013.

12. Atvinnumál fatlaðra/öryrkja.

Bæjarstjórn Akraness samþykkir að veita viðbótarfjárhæð kr. 500.000 til atvinnumála fatlaðra/öryrkja og heildarfjárhæð í fjárhagsáætlun til þessa afmarkaða verkefnis verði kr. 2.776.000. Gert er ráð fyrir að á næstu árum fjölgi örkorkusamningum um 2-3 á ári en í dag eru 13 virkir örorkusamningar í gangi. Starfsfólk vinnur ýmist hjá Akraneskaupstað eða hjá fyrirtækjum í bænum.

13. Fjárveiting vegna sýningarhalds í byggðasafninu.

Bæjarstjórn Akraness samþykkir að veita fjárhæð kr. 500.000 til Safnasvæðisins að Görðum vegna sýningarhalds í nýja sýningarsalnum sem tekinn hefur verið í notkun í Safnaskálanum. Á árinu 2014 er gert ráð fyrir 10 sérsýningum á vegum safnsins.

14. Bókasafn Akraness - 150 ára afmæli.

Bæjarstjórn Akraness samþykkir framlag að fjárhæð kr. 200.000 vegna afmælishátíðar Bókasafns Akraness. Stofndagur bókasafnsins er 6. nóvember árið 1864.

15. Viðburðir.

Bæjarstjórn Akraness samþykkir að veita viðbótarfjárhæð kr. 2.200.000 til viðburða á vegum bæjarins. Heildarupphæð til viðburða á árinu 2014 verður kr. 15.277.000.

16. Fjárveiting til Vitans.

Bæjarstjórn Akraness samþykkir að veita fjárhæð kr. 600.000 til að halda Akranesvita opnum sumarið 2014. Starfshópi í atvinnu- og ferðamálum er falið að útfæra tillöguna, meðal annars með tilliti til gjaldtöku í vitanum.

17. Fjárveiting í atvinnu- og ferðamálum.

Bæjarstjórn Akraness samþykkir að veita viðbótarfjárhæð, kr. 3.230.000 vegna aðkeyptrar sérfræðiþjónustu, prentunar, auglýsingakostnaðar o.fl. Heildarupphæð vegna þessara tegundalykla verður kr. 6.618.000.

18. Upplýsingaskilti fyrir ferðamenn.

Bæjarstjórn Akraness samþykkir að veita fjárhæð kr. 2.000.000 í gerð á nýju upplýsingaskilti fyrir ferðamenn. Nýtt skilti með upplýsingum um Akranes hefur verið tekið í notkun norðan Hvalfjarðarganga en stefnt er að því að fjölga slíkum skiltum verulega á næstu árum.

19. Stefnumótunarvinna í atvinnumálum.

Bæjarstjórn Akraness samþykkir framlag að fjárhæð kr. 1.000.000 sem ráðstafað verður í stefnumótunarvinnu í atvinnumálum. Vinnan að henni hefst að lokinni atvinnuráðstefnu sem haldin verður á Akranesi þann 30. nóvember 2013.

20. Aðalfundur Skógræktarfélags Akraness.

Bæjarstjórn Akraness samþykkir sérstakt framlag að fjárhæð kr. 300.000 til Skógræktarfélags Akraness vegna aðalfundar skógræktarfélaga á Íslandi sem haldinn verður á Akranesi helgina 15.-17. ágúst 2014.

21. Stefnumót við Skagamenn.

Bæjarstjórn Akraness samþykkir sérstakt framlag að fjárhæð kr. 1.000.000 til verkefnisins Stefnumót við Skagamenn sem Haraldur Bjarnason og Friðþjófur Helgason hafa unnið að.

Bæjarstjórn samþykkir 9:0 að vísa áætluninni og tillögunum til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Fundi slitið - kl. 19:30.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00