Fasteignafélag Akraneskaupstaðar slf. og ehf.
Ár 2007, fimmtudaginn 20. desember 2007 kom stjórn Fasteignafélags Akraness samnan til fundar í fundarsal bæjarskrifstofu og hófst hann kl. 15:50.
Mættir: Karen Jónsdóttir formaður,
Guðmundur Páll Jónsson,
Gunnar Sigurðsson.
Auk þeirra
Fyrir tekið:
1. Viljayfirlýsing, dags. 13.12.2007, við Smáragarð ehf. um kaup á ca. 1100 m2 húsnæði við Dalbraut 1 undir rekstur bókasafns. Viðmiðunarverð er ca. 300 mkr.
Nefndin samþykkir yfirlýsinguna með þeim skilyrðum að inn í söluverðið verði tekið söluandvirði Heiðarbrautar 40 að fjárhæð 60 mkr. Jafnfram verði stefnt að því að verðið verði áþekkt því verði sem samið var um við Smáragarð um Dalbraut 1 (fyrra húsnæði).
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 16:00.
Karen Jónsdóttir (sign)
Guðmundur Páll Jónsson (sign)
Gunnar Sigurðsson (sign)
Jón Pálmi Pálsson (sign)