Félagsmálaráð (2002-2008)
636. fundur félagsmálaráðs haldinn á félagsmáladeild Stillholti 16-18, þriðjud. 21. janúar 2003 og hófst hann kl.16:00.
______________________________________________________________
Mættir voru: Ágústa Friðriksdóttir
Margrét Þóra Jónsdóttir
Tryggvi Bjarnason,
Sigurveig Stefánsdóttir, varamaður
Sigurður Arnar Sigurðsson.
Auk þeirra Sólveig Reynisdóttir félagsmálastjóri og Sveinborg Kristjánsdóttir félagsráðgjafi sem ritaði fundargerð. Trúnaðarbók ritaði Sigurður Arnar Sigurðsson.
______________________________________________________________
Fundur settur af formanni.
Fyrir tekið:
1. Fjárhagsaðstoð
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.
2. Barnavernd
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.
3. Úthlutun viðbótarlána
Úthlutuð voru fimm viðbótarlán.
4. Bréf Barnaverndarstofu varðandi samstarf við neyðarlínuna, 112.
Félagsmálaráð samþykkir að taka þátt í verkefni Barnaverndarstofu um samstarf við neyðarlínuna, 112, varðandi tilkynningar til barnaverndarnefnda.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 17:50