Félagsmálaráð (2002-2008)
770. fundur félagsmálaráðs haldinn á skrifstofu ráðgjafadeildar,
Stillholti 16-18, mánud. 6. okt. 2008 og hófst hann kl. 16:00.
Mættir voru: Tryggvi Bjarnason, formaður
Hallveig Skúladóttir
Elín Sigurbjörnsdóttir
Guðný Rún Sigurðardóttir, varamaður
Ágústa Friðriksdóttir, varamaður
Auk þeirra Ingibjörg Gunnarsdóttir yfirfélagsráðgjafi, Sólveig Sigurðardóttir félagsráðgjafanemi og Sveinborg Kristjánsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs sem ritaði fundargerð. Fundargerð síðasta fundar lesin og samþykkt.
Fundur settur af formanni.
_____________________________________________________________
Fyrir tekið:
1. Fjárhagsaðstoð
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók
2. Barnavernd
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók
3. Upphæðir umönnunargreiðslna
Félagsmálaráð sér ekki ástæðu til að hækka umönnunargreiðslur að svo stöddu en vísar málinu til endurskoðunar reglna um umönnunargreiðslur sem fram fer í janúar ár hvert
4. Endurhæfingarhúsið HVER sækir um styrki til einstaklinga til að sækja ýmis námskeið
Félagsmálaráð telur sér ekki fært að verða við erindinu
Fundi slitið kl. 17:45