Hafnarstjórn (2000-2004)
Fundur hafnarstjórnar Akraness var haldinn mánudaginn 7. október 2002 í fundarsal í Stjórnsýsluhúsinu, Stillholti 16-18 og hófst hann kl. 12:00.
Mættir voru: Kristján Sveinsson, formaður,
Valdimar Þorvaldsson,
Björn S. Lárusson,
Herdís Þórðardóttir,
Gunnar Sigurðsson.
Auk þeirra Þorvaldur Guðmundsson yfirhafnarvörður og Gísli Gíslason hafnarstjóri, sem jafnframt ritaði fundargerð.
Fyrir tekið:
1. Ársfundur Hafnasambands sveitarfélaga 10. ? 11. október. Tilnefning fulltrúa.
Hafnarstjórn samþykkkir að tilnefna eftirfarandi aðila sem fulltrúa á hafnarsambandsþing:
Kristján Sveinsson,
Herdísi Þórðardóttur,
Valdimar Þorvaldsson og
Þorvald Guðmundsson.
2. Bréf lögreglunnar á Akranesi, dags. 19.9.2002, varðandi skemmdir á bifreiðum vegna málningarvinnu á hafnarsvæðinu.
Yfirhafnarverði falið að svara erindinu.
3. Bréf bæjarritara, dags. 19.9.2002, um afgreiðslu bæjarráðs á erindi hafnarstjórnar varðandi endurskoðun deiliskipulags hafnarinnar.
Lagt fram. Samþykkt að fá skipulagsfulltrúa á næsta fund hafnarstjórnar.
4. Bréf forstöðumanns hafnasviðs Siglingastofnunar, Gísla Viggóssonar, dags. 29.8.2002, um framkvæmdatíma endurnýjunar aðalhafnargarðs. Fyrir liggja þrír valkostir sem nánar er gerð grein fyrir í erindinu.
Hafnarstjórn samþykkir að framkvæmdir við aðalhafnargarð verði samkvæmt leið þrjú, sem felst í því að stálþil aðalhafnargarðs verði rekið niður í einum áfanga, þekja steypt árið 2004, en að endurbótum á grjótgarði verði frestað.
5. Önnur mál:
5.1. Bréf Þorgeirs og Ellerts hf. dags. 7. 10. 2002 varðandi girðingu og hlið á flotbryggju.
Yfirhafnarverði falið að kynna málið fyrir þeim sem nota bryggjuna. Erindinu vísað til fjárhagsáætlunar ársins 2003.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 13:00.