Skipulags- og umhverfisnefnd (2002-2006)
74. fundur skipulags- og umhverfisnefndar Akraness haldinn í fundarsal að Dalbraut 8 , miðvikudaginn 29. september 2004 kl. 16:00.
Mættir á fundi: |
Magnús Guðmundsson, formaður Bergþór Helgason Lárus Ársælsson Kristján Sveinsson Edda Agnarsdóttir |
Auk þeirra voru mætt: |
Þorvaldur Vestmann sviðsstj. tækni- og umhverfissviðs Guðný J. Ólafsdóttir sem ritaði fundargerð |
1. |
Aðalskipulag Akraness, stefnumótun og vinna |
|
Mál nr. SU030074 |
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Drög að stefnumótun fyrir aðalskipulag Akraness.
Árni Ólafsson, arkitekt mætti á fundinn og fór yfir forsendur v. endurskoðunar aðalskipulagsins. Lagði hann fram "Áfangaskýrslu 3", dags. í sept. 2004.
2. |
Skipulagsráðgjafar, yfirlit yfir umsækjendur - Skilgreining verkefna. |
|
Mál nr. SU040022 |
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Erindi bæjarráðs með ósk um rökstuðning fyrir ákvörðun á vali á skipulagshönnuðum á Jaðarsbakkasvæði .
Ákvörðun meirihluta nefndarinnar um val á ráðgjöfum var byggð á faglegum grunni. Hugmyndirnar voru kynntar fyrir nefndinni án verðtilboða til að byrja með og þær skoðaðar með faglegt sjónarmið í huga.
Í famhaldi af beiðni bæjarráðs um rökstuðning við val á ráðgjöfum er sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs falið að senda bæjarráði öll gögn málsins.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:50