Skipulags- og byggingarnefnd (2006-2008)
15. fundur skipulags- og byggingarnefndar Akraness haldinn í fundarsal tækni- og umhverfissviðs Dalbraut 8, mánudaginn 27. nóvember 2006
kl. 16:00.
Mætt á fundi: |
Hrafnkell Á Proppé Sæmundur Víglundsson Magnús Guðmundsson Bergþór Helgason Helga Jónsdóttir |
Auk þeirra voru mætt: |
Runólfur Þ. Sigurðsson, byggingarfulltrúi og Þorvaldur Vestmann, sviðsstjóri |
1. |
Álmskógar 12, nýtt einbýlishús |
(001.636.09) |
Mál nr. SB060057 |
030756-3129 Guðmundur Árnason, Háteigur 1, 300 Akranesi
Umsókn Snorra Guðmundssonar kt. 150678-4049 f.h. Guðmundar um heimild til þess að reisa einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum Sæmundar Eiríkssonar verkfræðings.
Stærðir húss 189,1 m2 - 666,7 m3
Bílgeymsla 44,7 m2 - 150,3 m3
Gjöld kr.: 3.204.694,-
Samþykkt af byggingafulltrúa þann 14.11.2006.
2. |
Smiðjuvellir 3, Stöðuleyfi fyrir hús |
(000.543.03) |
Mál nr. SB060112 |
490101-2170 Smiðjufell ehf, Smiðjuvöllum 3B, 300 Akranesi
Umsókn Kristjáns Einarssonar um heimild fyrir stöðuleyfi undir söluskála Bílás ehf til 1 Júní 2007
Gjöld: kr: 5827,--
Samþykkt af byggingafulltrúa þann 14.11.2006
3. |
Álmskógar 11, nýtt einbýlishús |
(001.636.30) |
Mál nr. SB060108 |
210450-2389 Þorgils Sigurþórsson, Leynisbraut 27, 300 Akranesi
Umsókn Þorgils Sigurþórssonar um heimild til þess að reisa einbýlihús með innbyggðri bílgeymslu samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum Sæmundar Eiríkssonar kt. 261249-2949 byggingarfræðings.
Stærðir húss 174,4 m2 - 638,5 m3
bílgeymsla 32,2 m2 - 89,0 m3
Gjöld kr.: 2.924.384 ,-
Samþykkt af byggingafulltrúa þann 21.11.2006
4. |
Meistararéttindi, Stálsmíðameistari |
|
Mál nr. SB060113 |
230168-5479 Guðjón Heiðar Guðmundsson, Vogabraut 28, 300 Akranesi
Umsókn Guðjóns H. Guðmunssonar um heimild til þess að hafa umsjón með og bera ábyrgða á byggingarframkvæmdum innan lögsagnarumdæmis Akraness sem stálsmíðameistari.
Meðfylgjandi:
Sveinsbréf, útgefið 21. júní 1988
Meistarabréf, útgefið 17. maí 1991.
Gjöld kr.: 5.827,-
Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 15. nóvember 2006 í samræmi við bréf Umhverfisráðuneytisins dags. 25. nóvember 2005.
5. |
Reynigrund 44, sólstofa |
(001.942.02) |
Mál nr. SB060040 |
070749-7699 Óli Jón Gunnarsson, Ásklif 4a, 340 Stykkishólmi
Grenndarkynning hefur farið fram og athugasemdafrestur rann út 11. nóvember 2006.
Engar athugasemdir bárust.
Með vísan í 3. grein skilmála um gróðurhús, glerskála og smáhýsi í Garðagrundarhverfi (Breyting II) samþykkir skipulags- og byggingarnefnd breytinguna.
6. |
Dalbraut 8, Bílastæði |
(000.592.02) |
Mál nr. SB060118 |
551298-3029 Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík
Fyrirspurn Lúðvíks Davíðs Björnssona tæknifræðings f.h. Orkuveitu Reykjavíkur um fyrikomulag á stungubílastæðum frá götuhlið að húseigninni Dalbraut 8 samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum.
Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í erindið enda er fyrirkomulag stæðanna í samræmi við fyrirkomulag á aðliggjandi lóðum.
7. |
Ökugerði, staðsetning |
|
Mál nr. SB060065 |
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir arkitekt mætti á fundinn og gerði grein fyrir deiliskipulagstillögu.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að tillagan verði auglýst samkv. 25. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 samhliða því að aðalskipulagsbreyting verður auglýst.
8. |
Flóahverfi, deiliskipulag |
|
Mál nr. SU060023 |
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir arkitekt mætti á fund nefndarinnar og gerði grein fyrir framvindu verkefnisins.
Nefndin stefnir að því að afgreiða tillöguna til auglýsingar á næsta fundi.
9. |
Flóahverfi, aðalskipulagsbreyting |
|
Mál nr. SB060119 |
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Ólöf Guðný Valdimarsdóttur arkitekt gerði grein fyrir tillögu að aðalskipulagsbreytingu sem nauðsynlegt er að gera vegna fyrirliggjandi tillögu að staðsetningu ökugerðis í Flóahverfi.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að tillagan verði auglýst samkv. 21. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
10. |
Sólmundarhöfði 7, deiliskipulagsbreyting |
|
Mál nr. SB060016 |
420502-5830 Vigur ehf., Lækjartorg 5, 101 Reykjavík
Greinargerð Ívars Pálssonar hdl. dags. 13. nóvember 2006 lögð fram.
Meirihluti skipulags- og byggingarnefndar leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt.
Bókun minnihluta skipulags- og byggingarnefndar vegna breytinga á deiliskipulagi við Sólmundarhöfða.
"Undirritaðir íttreka fyrri mótmæli gegn þeim breytingum sem gerðar eru á deiliskipulaginu við Sólmundarhöfða með því að hækka fyrirhugaða íbúðarblokk úr fjórum hæðum í átta hæðir og fjölga íbúðum úr 12 í 31. Sólmundarhöfði er viðkvæmt svæði og þegar gildandi deiliskipulag var endurskoðað á árunum 2004 - 2005 var haft að leiðarljósi að ná lendingu sem sátt myndi ríkja um. Boðað var til samráðsfundar með hagsmunaaðilum og í kjölfar þess var það samhljóða niðurstaða skipulags- og umhverfisnefndar að draga sem mest úr byggingarmagni á svæðinu. Nú hefur meirihluti skipulags- og byggingarnefndar valið að breyta deiliskipulaginu einhliða að ósk verktakans sem var valinn í samkeppni til að byggja 12 íbúða hús á svæðinu. Sá fjöldi skriflegra mótmæla sem borist hafa sýnir að sú sátt sem náðist um skipulag svæðisins hfur verið rofin.
Hrafnkell Á. Proppé (sign)
Magnús Guðmundsson (sign)
11. |
Sunnubraut 2, Breytt notkun |
(000.872.10) |
Mál nr. BN060014 |
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Breytingin var auglýst, athugasemdafrestur rann út 13. nóvember 2006.
Engar athugasemdir bárust.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að breytingin verði samþykkt.
12. |
Smiðjuvellir 13 og 15, deiliskipulagsbreyting |
|
Mál nr. SB060081 |
480794-2069 Bifreiðastöð Þórðar Þ Þórð ehf, Dalbraut 6, 300 Akranesi
Umsókn Þórðar Þ. Þórðarsonar f.h. Bifreiðastöðvar Þórðar Þ. Þórðarsonar dags. 11. okt. 2006 þar sem óskað er eftir að sameina lóðirnar nr. 13 og 15 við Smiðjuvelli.
Uppdráttur Ómars Péturssonar lagður fram.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að breytingin verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 9, 11, 17 og 28.
13. |
Viðjuskógar 8,10,12,14,16 og 18, fyrirspurn |
|
Mál nr. SB060117 |
690102-2930 Sigurjón Skúlason ehf, Ásabraut 11, 300 Akranesi
Fyrirspurn Sigurjóns Skúlasonar dags. 21 nóvember 2006 þar sem hann óskar eftir að fá að breyta deiliskipulagi Viðjuskóga 8,10,12,14, 16 og 18.
Breytingin felst í að breyta 4 raðhúsalóðum og 2 parhúsalóðum í 4 einbýlishúsalóðir á einni hæð.
Skipulags- og byggingarnefnd getur ekki fallist á umrædda breytingu.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:10