Skipulags- og umhverfisnefnd (2009-2014)
Dagskrá
1.Deiliskipulag - Hafnarsvæði, Faxabraut 1, 3 og 5.
1310176
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi sem meðal annars tekur til breytinga á lóðarmörkum, afmörkun húsa og götu.
2.Bakkatún - ósk um hraðahindrun.
1306155
Niðurstaða hraðagreiningar lögð fram.
Þórarinn Jónsson fór yfir niðurstöður úr umferðargreini sem settur var við Bakkatún í sumar samkv. beiðni nefndarinnar. Skipulags- og umhverfisnefnd þakkar kynninguna og leggur til að niðurstöður verði einnig kynntar starfshópi um umferðaröryggi. Formanni falið að fylgja málinu eftir.
3.Deiliskipulög í vinnslu.
1310184
Yfirlit yfir skipulag í vinnslu.
Byggingar- og skipulagsfulltrúi lagði fram yfirlit yfir þau skipulagsverkefni sem eru í gangi.
Fundi slitið - kl. 17:00.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði auglýst samkvæmt 1. mgr. skipulagslaga nr. 123/2010.