Skipulags- og umhverfisnefnd (2009-2014)
Dagskrá
1.Byggingarskýrsla 2009
1003079
2.Hafnar- og Breiðarsvæði, deiliskipulag
1003080
Yfirlitsmynd af hafnarsvæðinu lögð fram.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarráð að ráðist verði í gerð deiliskipulags á Breiðarsvæðinu í samstarfi við Faxaflóahafnir sem vinnur nú að gerð deiliskipulags fyrir hafnarsvæðin. Áætlaður kostnaður Akraneskaupstaðar er um kr. 3 millj. og er óskað eftir fjárveitingu til verksins.
3.Aðalskipulag - kynning
1002249
Bréf Skipulagsstofnunar dags. 23. febrúar 2010.
Lagt fram.
4.Dagsektir - úrskurður v. framkvæmdar
1003038
Bréf Skipulagsstofnunar dags. 1.3.2010 þar sem vakin er athygli á úrskurði úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarlaga frá 7. sept.2009, í máli nr. 114/2008.
Skipulags- og umhverfisnefnd vísar bréfi Skipulagsstofnunar til kynningar í bæjarstjórn.
5.Dagur umhverfisins 2010.
1003067
Bréf Umhverfisráðuneytis dags. 2.3.2010 um dag umhverfisins.
Nefndin beinir því til grunn-og leikskóla bæjarins að dagur umhverfisins sem er sunnudagurinn 25. apríl n.k. verði kynntur sérstaklega í skólastarfinu.
Fundi slitið.
Byggingarfulltrúi kynnti byggingarskýrslu ársins 2009.